Capello líkir Jack Wilshere við Baresi, Maldini og Raúl Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. febrúar 2011 11:30 Jack Wilshire. Mynd/Nordic Photos/Getty
Jack Wilshire, miðjumaður Arsenal, verður í fyrsta sinn í byrjunarliði enska landsliðsins í kvöld þegar Englendingar mæta Dönum í vináttulandsleik á Parken í Kaupmannahöfn. Fabio Capello hefur mikla trú á stráknum og ætlar að byggja enska landsliðið í kringum hann. „Hann er búinn að bæta sig mikið á fimm mánuðum. Nú þarf hann að öðlast meiri reynslu í stórum leikjum, leikjum í Meistaradeildinni og á móti hinum stóru klúbbunum í ensku úrvalsdeildinni. Með því fengi hann dýrmæta reynslu," sagði Fabio Capello um hinn 19 ára gamla Wilshire. „Hann er bara 19 ára gamall en ég man eftir því að bestu leikmennirnir sem ég hef þjálfað, Franco Baresi, Paolo Maldini og Raúl, byrjuðu allir mjög ungir. Þeir höfðu það mikla hæfileika og nú verðum við bara að bíða róleg og leyfa Wilshere að bæta sig enn meira," segir Capello. „Hann mun fá tækifæri í kvöld en þetta er engin úrslitstund fyrir hann. Hann hefur hæfileikana en eldri leikmennirnir í liðinu þurfa líka að hjálpa honum. Ég vona að hann eigi eftir að spila fjölda leikja fyrir England því það þýddi að við værum komnir með mann til þess að spila fyrir framan þá fjóra öftustu," sagði Capello. „Ég hef talað við Arsene Wenger um bestu stöðuna fyrir Wilshere. Hann byrjaði sem sóknartengiliður en hann getur einnig spilað aftar á vellinum. Ég hef notað dæmi um hvernig Claude Makelele færði sig aftar en annað dæmi er Andrea Pirlo sem byrjaði að spila fyrir aftan framherjann en fór síðan í það að sðila fyrir framan vörnina," sagði Capello og bætti við: „Klár og klókur leikmaður getur spilað allstaðar á vellinum og við höfum ekki enska leikmenn í dag sem geta spilað þessa stöðu eins og Wilshire," sagði Capello.
Mest lesið Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Bakgarðsáskorun: Stefnir hátt í síðasta Bakgarðshlaupinu sínu Sport Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Mun skilja sál mína eftir í búrinu“ Sport Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira