Torres ætlar að endurgreiða Roman í mörkum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. febrúar 2011 13:45 Nordic Photos / Getty Images
Fernando Torres segist ætla að endurgreiða Roman Abramovich, eiganda Chelsea, í mörkum fyrir að hafa keypt sig frá Liverpool fyrir 50 milljónir punda. Torres mistókst að skora í sínum fyrsta leik með Chelsea er liðið mætti einmitt Liverpool fyrir rúmri viku síðan. En Chelsea mætir Fulham á útivelli í kvöld og hefur Torres ekki misst trúna á sjálfum sér. „Þess er vænst af framherjum að þeir skori mörk og ég mun borga félaginu til baka í mörkum," sagði Torres. „Ég hef ekki hitt Roman Abramovich. En það segir mikið um hans drauma fyrst hann er reiðubúinn að borga svo mikið." „Við viljum allir endurgreiða honum fyrir allt það sem hann hefur gert. Ég verð að gera mitt inn á vellinum. Það er fallegt að hann borgaði svona mikið fyrir mig." „Þegar að tímabilið byrjaði þá átti ég von á því að ég myndi spila mikið svo að ég myndi gleyma meiðslunum mínum. En tímabilið byrjaði illa hjá Liverpool." „Það var því engin ljósglæta við enda ganganna. Svo fékk ég ótrúlegt tækifæri og get nú farið að berjast fyrir því sem ég hef alltaf viljað berjast fyrir." Hann segir að hann hafi gert sér grein fyrir því að hann myndi fara frá Liverpool þegar að þeir Javier Mascherano og Xabi Alonso voru seldir frá félaginu. „Fólk sem stendur fyrir utan skilur ekki allt í knattspyrnunni. Vandamálið er að eftir að Alonso og Mascherano voru seldir sá ég fyrst ljós við enda ganganna þegar að Chelsea kom til sögunnar." „Það kom að því að minn tími hjá félaginu var liðinn. Ég vona að stuðningsmenn Liverpool skilji það einn daginn." „Ég myndi vilja snúa aftur til Liverpool einn daginn. Ég bý yfir miklu þakklæti til fólksins, félagsins og allra í Liverpool."
Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Gray hetja Tottenham Enski boltinn Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Körfubolti Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Van Gerwen: „Alveg sama um Luke og Luke“ Sport Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fleiri fréttir Jöfnuðu 128 ára gamalt met Gray hetja Tottenham Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Sjá meira