Kveikt á Oslóar-trénu á sunnudaginn 23. nóvember 2011 14:36 Mynd/Valgarður
Ljósin verða tendruð á Oslóar-jólatrénu á Austurvelli á sunnudaginn kemur. Nú eru sextíu ár liðin frá því íbúar Oslóar færðu Reykvíkingum fyrsta tréð en það hefur ævinlega verið sett upp á Austurvelli og kveikt á því við hátíðlega athöfn fyrsta sunnudag í aðventu. Engin undantekning verður á því í ár og kemur Gunnar Halle trompetleikari frá Noregi fram sem sérstakur gestur Aðventuhátíðar og leikur hann undir jólasöng Dómkirkjukórsins klukkan 16:00, að undangengnum jólatónlistarflutningi Lúðrasveitar Reykjavíkur sem hefst kl. 15.30. „Þess má geta að Gunnar heldur kvöldið áður, laugardaginn 26. nóvember, aðventutónleika í Dómkirkjunni í Reykajvík kl. 18 ásamt píanóleikaranum Espen Eriksen. Er það norska sendiráðið á Íslandi sem hefur veg og vanda að komu þeirra hingað. Það er Toril Berge, formaður borgarstjórnarflokks Venstre í Osló, sem færa mun borgarstjóra vorum Jóni Gnarr og Reykvíkingum tréð að gjöf og verður það hin 8 ára gamla norsk-íslenska Sara Lilja Ingólfsdóttir Haug sem fær þann heiður að tendra ljósin á trénu,“ segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Góðir gestir munu einnig birtast á sviðinu við Austurvöll. „Leikarinn Gunnar Eyjólfsson mun flytja kvæði um Leppalúða, Gói og Þröstur Leó mun flytja brot úr ævintýrinu um Eldfærin sem og úr Baunagrasinu sem frumsýnt verður í Borgarleikhúsinu í febrúar. Að lokum munu Stúfur, Gluggagægir og Hurðaskellir kíkja við en þeir hafa laumað sér í bæinn til að segja börnunum sögum og syngja jólalög.“ Tréð er flutt til landsins af Eimskip sem hefur séð um flutninginn frá upphafi borgarbúum að kostnaðarlausu. „Var tréð hoggið við Finnerud í Nordmarka þann 11. nóvember s.l. og er rúmlega 12 metra hátt. Að venju verður það skreytt fögrum ljósum en í fyrsta sinn mun jólastjarna nú einnig prýða topp þess. Grénitréð mun auk þess skarta jólaóróa Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra og í ár er það Leppalúði sem horfir íbygginn milli greinanna.“
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Fleiri fréttir Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Sjá meira