Fyrsta morðið sem næst á vefmyndavél - engin dánarorsök 19. apríl 2011 22:00 Strákur sá tilræðismann kærustu sinnar gegnum vefmyndavél.
Síðastliðinn föstudag var kínversk stúlka myrt í Kanada á meðan að kærastinn hennar horfði á gegnum vefmyndavél frá annarri heimsálfu. Líklega er um að ræða fyrsta sinn í sögu Kanada sem einhver verður vitni að morði gegnum internetið. Stúlkan stundaði háskólanám í Toronto. Hún var að spjalla við kærastann sinn gegnum spjallsíðu á netinu þegar bankað var á dyrnar að herbergi hennar. Fyrir utan stóð karlmaður sem kærasti hennar þekkti ekki en lýsti síðar sem vöðvastæltum hvítum karlmanni. Hún hleypti honum inn og fljótlega brutust fram átök. Kærasti hennar sat svo hjálparvana í Kína og horfði á stimpingarnar gegnum vefmyndavél. Eftir nokkra stund komst karlmaðurinn í tölvuna og rauf netsambandið. Kærasti stúlkunnar setti sig í kjölfarið í samband við lögregluna í Toronto og sagði frá atvikunum. Lögreglan kom ekki á staðinn fyrr en tíu tímum síðar og fann þar stúlkuna örenda á gólfinu. Þegar komið var að henni hafði hún verið færð úr öllum fötum neðan við mitti. Ekki sáust á henni neinir áverkar eða merki um kynferðislega misnotkun.Kínverski háskólaneminn.Þegar lögregla kom á vettvang hafði tölvan verið fjarlægð og er hún enn ófundin. Lögreglan hefur lýst eftir henni, enda er talið að upptakan af morðinu kunni að leynast þar inná. Ennfremur hefur lögreglan lýst eftir hjálp allra netsérfræðinga landsins við að leita að upptökunum í gagnabönkum inni á vefnum. Í dag komu fram nýjar og óvæntar upplýsingar í málinu. Við krufningu var ekki sýnt fram á neina dánarorsök. Ráðgátan um það hvað drap stúlkuna hefur því dýpkað enn frekar. Helst hallast menn að því að henni hafi verið byrlað einhvers konar banvænt eitur. Morðinginn er ófundinn og rannsókn í fullum gangi.
Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Fleiri fréttir Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Sjá meira