Innlent

Lér Konungur sýning ársins

Grímuverðlaunin voru afhent í níunda sinn fyrr í kvöld við hátíðlega athöfn á Stóra sviði Borgarleikhússins. Gríman er uppskeruhátíð leikhúsfólks og það er Leiklistarsamband Íslands, heildarsamtök sviðslistanna á Íslandi, sem hefur veg og vanda að Grímuverðlaununum, en Leiklistarsambandið fagnaði í kvöld aðsóknarmesta leikári Íslandssögunnar.

Leiksýning ársins var kjörin sviðssetning Þjóðleikhússins á Shakespeare-verkinu Lér konungur, í leikstjórn hins ástralska Benedict Andrews, sem einnig var kjörinn leikstjóri ársins. Leiksýningin Nei ráðherra! í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins hlaut áhorfendaverðlaunin í ár og var sýningin Gilitrutt í sviðssetningu Brúðuheima í Borgarnesi svo valin barnasýning ársins.

Unnur Ösp Stefánsdóttir var valin leikkona ársins í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í sýningunni Elsku barn, og Arnar Jónsson var valinn leikari ársins í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í Lé konungi.

Alls voru veitt verðlaun í 16 flokkum sviðslista auk heiðursverðlauna, sem veitt eru þeim listamanni er skilað hefur framúrskarandi ævistarfi í þágu sviðslista, og var það Oddur Björnsson sem hlaut heiðursverðlaunin í ár.



Verðlaunahafar

Leikkona ársins í aukahlutverki


Margrét Vilhjálmsdóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Lér Konungur í sviðssetningu Þjóðleikhússins

Leikari ársins í aukahlutverki

Atli Rafn Sigurðsson fyrir hlutverk sitt í Lé Konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins.

Söngvari ársins

Ólafur Kjartan Sigurðsson fyrir hlutverk sitt í óperunni Rigoletto í sviðssetningu Íslensku óperunnar.

Dansari ársins

Gunnlaugur Egilsson fyrir hlutverk sitt í danssýningunni Bræðrum í sviðssetningu Pars Pro Toto í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík og Þjóðleikhúsið.

Danshöfundur ársins

Valgerður Rúnarsdóttir og hópurinn allur sem stóð að baki danssýningunni Eyjaskeggi í sviðssetningu Reykjavík Dance Festival.

Tónlist/hljóðmynd ársins

Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir fyrir tónlist í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins.

Leikskáld ársins

Auður Jónsdóttir og Ólafur Egill Egilsson fyrir leikverkið Fólkið í kjallaranum í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins

Leikmynd ársins

Halla Gunnarsdóttir fyrir leikmynd í leiksýningunni Strýhærða Pétri í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins

Búningar ársins

Filippía I Elísdóttir fyrir búninga í leiksýningunni Ofviðrinu í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins

Útvarpsverk ársins

Djúpið, eftir Jón Atla Jónasson

Lýsing ársins

Björn Bergsteinn Guðmundsson fyrir lýsingu í leiksýningunni Ofviðrinu í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins

Barnasýning ársins

Gilitrutt í sviðssetningu Brúðuheima

Leikkona ársins í aðalhlutverki

Unnur Ösp Stefánsdóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Elsku barni í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins

Leikari ársins í aðalhlutverki

Arnar Jónsson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins

Leikstjóri ársins

Benedict Andrews fyrir leikstjórn í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins

Áhorfendaverðlaunin

Nei ráðherra! í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins

Sýning ársins

Lér konungur í sviðssetningu Þjóðleikhússins

Heiðursverðlaun Grímunnar

Oddur Björnsson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×