Sýrlensk stúlka reyndist vera bandarískur karlmaður 13. júní 2011 08:00 Tom MacMaster bað lesendur bloggsins afsökunar í gær.
Samkynhneigð sýrlensk stúlka, sem vakti mikla athygli fyrir blogg sem hún ritaði frá Damaskus, reyndist í gær vera harðgiftur bandarískur karlmaður. Frá því fyrsta færsla bloggsins var birt í febrúar, gátu lesendur nálgast þar hugsanir, vangaveltur og myndir af hinni hálf-bandarísku Aminu Abdallah Araf al Omari, sem talaði opinskátt um líf sitt sem samkynhneigð kona í arabalandi, mótmælin í Sýrlandi, og drauma sína um frjálsa þjóð. Henni var hinsvegar rænt síðastliðinn þriðjudag og birti frænka Aminu þá tilkynningu þess efnis á bloggi stúlkunnar. Fregnir um málið bárust fljótt í erlenda miðla, en ekki leið á löngu áður en víða fóru að vakna efasemdir. Vísbendingar virtust margar benda til þess að Amina væri hreinn uppspuni, og varð grunlaus kona frá London vægast sagt hissa þegar hún sá mynd af sjáfri sér á fréttavef The Guardian en myndin, sem birst hafði á blogginu, átti að vera af Aminu sjálfri. Maðurinn sem reyndist hafa verið á bak við bloggið, hinn 40 ára gamli Tom MacMaster sem búsettur er í Edinborg, birti afsökunarbeiðni á síðu Aminu í gær þar sem hann sagðist aldrei hafa búist við svona mikilli athygli. Hann sagði að þó svo persónan á bak við skrifin hefði verið uppspuni, þá væru staðreyndirnar sem fram hefðu komið sannar og endurspegluðu ástandið í Sýrlandi réttilega. Hann hefði í gegnum Aminu skapað mikilvæga rödd sem hefði vakið athygli á þeim málefnum sem skipta hann miklu máli. Blog Aminu má nálgast á slóðinni www.damascusgaygirl.blogspot.com
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira