Albert í FH: Búinn að liggja í símanum síðustu daga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. október 2011 19:54 Albert Brynjar Ingason. Mynd/Stefán
Albert Brynjar Ingason er nýjasti FH-ingurinn eftir að hann ákvað í kvöld að yfirgefa Fylki og gera tveggja ára samning við FH. „Það er mjög ljúft að vera búinn að ákveða sig. Maður er búinn að liggja í símanum og þetta er búið að taka mikið af manni þessa dagana," sagði Albert. „FH er bara fáránlega freistandi klúbbur og þegar ég hitti Heimi þá var ég strax mjög hrifinn af öllu því sem hann hafði fram að bjóða sem og öllum aðstæðum. Hann labbaði með mér í gegnum þetta og mér leist virkilega vel á þetta," sagði Albert. „Árangur hjá FH síðustu tíu ár hefur verið frábær og þetta er það lið sem hefur sýnt mestan stöðugleika í deildinni. Mig langar að prófa mig í þessu umhverfi," segir Albert. „Það hefði verið óskiljanleg ákvörðun að fara frá Fylki í lið sem er ekkert betra en Fylkir eða er búið að vera að berjast á svipuðum stað og Fylkir síðustu ár. Það er aðeins skiljanlegra að fara í lið sem er búið að vera í fyrsta eða öðru sæti síðustu tíu ár," sagði Albert en hann gaf ekki mikið fyrir tenginguna á bak við föður og afa síns. „Það hafði engin áhrif því þá hefði ég endað í Val," sagði Albert en faðir hans Ingi Björn Albertsson og afi hans Albert Guðmundsson spiluðu langstærsta hluta síns ferils með Val þó að þeir hafi báðir farið seinna í FH. Albert býst við harðri samkeppni um stöðurnar í FH-sókninni næsta sumar. „Þeir eru með frábæra sóknarlínu og það verður verðugt verkefni að komast í liðið. Það væri samt ákveðið metnaðarleysi ef maður léti það stoppa sig í því að fara í svona flottan klúbb," sagði Albert en það er rætt meira við hann í Fréttablaðinu á morgun.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Ég hélt ég myndi deyja“ Enski boltinn „Enginn vildi að ég myndi vinna“ Sport Klúðraði gullgreininni sinni: „Ég er enn í áfalli“ Sport Hetjuleg barátta dugði ekki gegn heimsmeisturunum Handbolti Þungarokkið þaut áfram en á eftir að kaupa afmælisgjöf handa konunni Sport Nottingham Forest vill fá að heyra samtöl dómaranna Enski boltinn Senda samúðarkveðjur eftir að nánir vinir Joshua létust í banaslysinu Sport Ekki góð ferð til Rómarborgar í kvöld Fótbolti Fór grátandi upp á sjúkrahús eftir fall stuttu fyrir ÓL Sport Mennirnir sem létust voru þjálfarar og nánir vinir Anthony Joshua Sport Fleiri fréttir Enn kvarnast úr liði Blika Leið Víkings að titlinum rifjuð upp í kvöld Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Sjá meira