Innlent

Dreifingu símaskrárinnar hætt og standar fjarlægðir úr verslunum

Egill Gillz Einarsson undirritar samning við Já fyrir rúmu ári síðan.
Egill Gillz Einarsson undirritar samning við Já fyrir rúmu ári síðan.
Símaskráin hefur verið tekin úr virkri dreifingu samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdastjóra Já, Sigríði Margréti Oddsdóttur. Þetta hefur meðal annars verið gert í ljósi þess að Egill Gillz Einarsson og unnusta hafa verið kærð fyrir að nauðga átján ára stúlku 25. nóvember síðastliðinn.

Sérstakir standar, sem símaskráin var geymd í, hafa einnig verið fjarlægðir úr verslunum Símans, en það var gert í gær. Hún hefur hingað til verið í dreifingu í verslun Símans til áramóta.

Að sögn Sigríðar Margrétar, þá var dreifingu í raun lokið þegar málið kom upp, enda hefur símaskráin, sem Egill prýðir ásamt fimleikastúlkum úr Gerplu, verið dreift núna í all nokkra mánuði, en dreifingu hennar í pósthúsum um land allt lauk í raun í ágúst síðastliðnum.

Sigríður Margrét segir í samtali við Vísi að ástæðan fyrir því að ekki sé hægt að nálgast skránna lengur í verslun Símans, sé meðal annars vegna alvarlegra ásakana gegn Agli, án þess að Já taki sérstaka afstöðu í því máli að sögn Sigríðar.

Það var harðlega gagnrýnt þegar það var tilkynnt á síðasta ári að Egill ætti að prýða forsíðuna. Vísir greindi meðal annars frá því að hundruð manns hefðu skráð sig á mótmælaskjal á netinu vegna þessa. Ástæðan var sú að fólki þótti grínið hans niðurlægjandi og kvenfyrirlitningin mikil.

Egill prýddi ekki aðeins forsíðuna heldur var hann titlaður meðhöfundur skrárinnar. Meðal annars voru 17 manns á sérstökum heiðurslista í skránni. Þar af vor 4 konur. Þeir sem voru þess verðugir að komast inn á heiðurslista Egils fengu mynd af sér í símaskránna.

Meðal þeirra var Sveinn Andri Sveinsson lögmaður, sem steig fram á Facebook-síðu sinni um helgina og hélt því fram að Egill sætti meðal annars pólitískum ofsóknum.

Það verður hinsvegar Borgarleikhúsið sem sér um næstu forsíðu Símaskrárinnar. Enn er hægt að nálgast símaskrá Egils á skrifstofu Já.

Vísir greindi frá því í dag að kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefði sett nauðgunarrannsókn gegn Gillz og unnustu í forgang.


Tengdar fréttir

Ari Edwald: Gillz fer ekki í loftið á meðan málið er í athugun

"Hann fer ekki í loftið á meðan málið er í athugun,“ svarar Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, spurður hvort Egill Gillzenegger Einarsson, muni skemmta landanum á vegum 365 miðla eftir að hann og unnusta hans voru kærð fyrir nauðgun í síðustu viku.

Gillz kærður fyrir nauðgun

Egill Einarsson, kallaður Gillzenegger, hefur verið kærður fyrir nauðgun. Það er Eyjan.is sem greinir frá þessu.

Gillz segir nauðgunarásakanir fráleitar

Egill Einarsson, eða Gillzenegger, segir ásakanir um nauðgun fráleitar og eingöngu til þess fallnar að sverta mannorð sitt. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Egill sendi Vísi fyrir stundu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×