Heilsustofnun óttast erfðabreytta ræktun 23. desember 2011 09:30 Efst í vinstra horni sést starfsemi Landbúnaðarháskólans en HNLFÍ fyrir miðri mynd. Um 700 metrar eru á milli í beinni loftlínu.mynd/HNLfí
Forsvarsmenn Heilsustofnunarinnar í Hveragerði óttast að ræktun erfðabreytts byggs í næsta nágrenni geri áratuga uppbyggingarstarf að engu. Ímynd fyrirtækisins sé í hættu. Í rökum fyrir ræktunarleyfi er engin hætta talin á mengun. Forsvarsmenn Náttúrulækningafélags Íslands (NLFÍ) sem á og rekur Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði hafa þungar áhyggjur af fyrirhugaðri ræktun erfðabreyttra plantna í tilraunagróðurhúsi Landbúnaðarháskólans að Reykjum. Gróðurhúsið er innan við kílómetra frá stofnuninni, langt innan þeirra fjarlægðarmarka sem höfð eru til hliðsjónar fyrir lífræna vottun erlendis. Ingi Þór Jónsson, markaðsstjóri HNLFÍ, segir að lífræn ræktun sé mikilvægur hluti starfseminnar og þeirrar ímyndar sem byggð hafi verið upp á löngum tíma. Hann segir að NLFÍ fordæmi erfðabreytingar í náttúrunni en þegar kemur að ræktun innandyra hljóti að vera krafa um að engin hætta sé á mengun. Hins vegar sé mörgum spurningum ósvarað hvað það varðar og náttúran eigi að njóta vafans. Því setji félagið spurningar við tilraunaræktun í gróðurhúsi Lbhí og þær forsendur sem liggja til grundvallar leyfi Umhverfisstofnunar. „Umrædd leyfisveiting gefur tilefni til þess að hafa þungar áhyggjur. Þetta er grafalvarlegt mál,“ segir Ingi Þór. Umhverfisstofnun gaf út leyfi til ORF Líftækni hf. fyrir ræktun á erfðabreyttu byggi í gróðurhúsi LbhÍ 30. nóvember. Verndun og ræktun (VOR) gagnrýndi þá ákvörðun hart með þeim rökum að skólinn væri kominn langt út fyrir hlutverk sitt. Ágúst Sigurðsson rektor svaraði því til að rök VOR ættu sér enga stoð. ORF fengi lítið hólf í gróðurhúsinu til afnota, sem ekki væri nýtt hvort sem er. Umsókn og ræktunarleyfi Umhverfisstofnunar er hins vegar til ræktunar í öllu húsinu, eða á 1.100 fermetrum. Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur hjá UMÍS ehf. Environice, hefur bent á að í reglum bresku vottunarstofunnar Soil Association fyrir lífræna ræktun kemur fram, að séu erfðabreyttar lífverur ræktaðar í minna en sex mílna fjarlægð (9,6 kílómetra) þurfi sá sem sækir um lífræna vottun að tilkynna um nábýlið, og í framhaldinu að fara í gegnum sérstakt áhættumat, þar sem skoðað er hvort erfðabreytt efni geti hugsanlega mengað framleiðsluna og þannig komið í veg fyrir að unnt sé að votta hana sem lífræna. Evrópskar vottunarstofur fyrir lífræna ræktun fylgja allar sömu reglum í öllum aðalatriðum. Það þýðir ekki að þeir geti ekki fengið vottun, en ljóst að þeir séu ólíklegri til þess en framleiðendur á öðrum svæðum og þurfi væntanlega að bera meiri kostnað, að sögn Stefáns. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Fleiri fréttir Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Sjá meira