Mikil framleiðsla á amfetamíni hér á landi 8. desember 2011 11:00 Kókaínmarkaðurinn virðist vera að eflast á ný. „
Það liggur fyrir að hér á landi er framleitt mikið af marijúana og amfetamíni og mjög lítið af þessum efnum flutt inn, að minnsta kosti tilbúið til neyslu.“ Þetta segir Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar LRH, spurður um hugsanlegar skýringar á því að umræddar tegundir fíkniefna hafa hrapað í verði á götunni. Verð á vímuefnum hefur farið lækkandi undanfarin tvö ár, samkvæmt verðmælingum sem SÁÁ gerir meðal sjúklinga á Vogi. Verðið hefur ekki verið lægra síðan mælingar hófust um síðustu aldamót. Kannanirnar sýna að í fyrsta skipti í ársbyrjun 2010 skilur í fyrsta skipti á milli verðþróunar á áfengi og fíkniefnum. Meðan áfengi hélt áfram að hækka lítillega lækkaðu vímuefnin umtalsvert. Nefna má að 2010 lækkaði amfetamín mikið í verði og hass nokkuð. Hassið elti síðan verðlækkun á amfetamíni á þessu ári. Verð á kókaíni hefur að mestu staðið í stað en verð á rítalíni hefur hækkað og nánast fjórfaldaðist á tímabili miðað við verð ársins 2006. Karl Steinar kveðst telja að í fíkniefnaviðskiptum, þótt ólögleg séu, ríki í raun sömu lögmál og í almennum viðskiptum sem ráðist af framboði og eftirspurn. „Hugsanlega gætu menn verið að reyna að ná yfiráðum á einhverjum hluta markaðar með því að bjóða efni á lægra verði,“ útskýrir hann. „Það gæti líka skýrt stöðu annarra efna, það er að segja kókaíns og e-taflna, að markaðurinn á kókaíni hefur verið í lægð en virðist vera að eflast á ný. E-töflumarkaðurinn hefur verið miklu óstöðugri og erfitt að lesa í hreyfingar á verði þar.“- jss
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira