Aðgerðaáætlun OR staðist á þessu ári 8. desember 2011 05:00 Aðgerðaáætlun OR var kynnt á blaðamannafundi í höfuðstöðvum fyrirtækisins í lok mars. Vel hefur gengið að ná markmiðum fyrirtækisins um sparnað á þessu ári. Fréttablaðið/pjetur
Útlit er fyrir að Orkuveita Reykjavíkur (OR) nái markmiðum sínum um hagræðingu í rekstri og gott betur á þessu ári. Í lok þriðja ársfjórðungs hafði fyrirtækið þegar sparað sem jafngildir rúmum 97 prósentum af markmiði ársins. Stjórn og eigendur OR samþykktu í apríl aðgerðaáætlun sem miðar að því að gera fyrirtækinu kleift að standa við afborganir af skuldum sínum. Stendur OR frammi fyrir stórum gjalddögum á næstu árum sem samanlagt nema 113 milljörðum króna til og með árinu 2017. Áætlun OR nefnist „Planið“ og nær til ársins 2016. Í áætluninni hefur fyrirtækið sett sér markmið um hagræðingu í rekstri á hverju ári til og með 2016. Mun fyrirtækið framvegis birta skýrslu um hvernig gengur að ná settum markmiðum stuttu eftir birtingu ársfjórðungsuppgjörs. Fyrsta slíka skýrslan var birt í gær. Í áætlun Orkuveitunnar var gert ráð fyrir 11,5 milljarða króna sparnaði á síðustu þremur fjórðungum ársins. Á öðrum og þriðja ársfjórðungi hefur þegar náðst fram sparnaður sem nemur 11,2 milljörðum og er því ljóst að aðhaldsaðgerðir fyrirtækisins hafa borið meiri ávöxt en reiknað var með. Tekist hefur að lækka rekstrarkostnað talsvert meira en gert var ráð fyrir og sömuleiðis tekist að spara með minni fjárfestingu í veitukerfi um meira en gert var ráð fyrir. Þessi árangur hefur náðst þrátt fyrir að áhrif ytri breyta, svo sem þróunar gengis krónunnar og álverðs, hafi kostað fyrirtækið 308 milljónir. Þó ber að hafa í huga að tekjur upp á rétt tæpa 8 milljarða má rekja til víkjandi láns frá eigendum fyrirtækisins. Á því sex ára tímabili sem aðgerðaáætlunin nær til hyggst Orkuveitan ná fram sparnaði sem nemur rétt rúmum 50 milljörðum. Þar af eiga 10 milljarðar að koma frá sölu eigna, 12 milljarðar koma í formi víkjandi láns frá eigendum fyrirtækisins, 15 milljarðar eiga að koma til vegna minni fjárfestinga í veitukerfi fyrirtækisins og rúmir 8 milljarðar með hækkunum á gjaldskrám fyrirtækisins. Á tímabilinu verða gjaldskrár hækkaðar tvisvar á ári til að halda í við þróun verðbólgu, en það var eitt af skilyrðum eigenda fyrirtækisins fyrir lánveitingunni. magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Sinueldur við Elliðavatn Innlent Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Erlent Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir Innlent Íslendingar gerðu það sem tröllunum mistókst Innlent Býst við að samningar náist fljótlega og auglýsir eftir starfsfólki Innlent Sjálfsafgreiðslukassar og aukin sjálfvirkni auki vandann Innlent „Hrikalega óábyrgt og jafnvel hættulegt“ að senda börnin sín vísvitandi veik á leikskóla Innlent Intuens hafi nýtt sér óttann og kvíðann sem krabbamein valdi til að græða Innlent Fjórir sinueldar á sólarhring: „Við skulum bara leggjast á bæn og vona að það komi snjór“ Innlent Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Innlent Fleiri fréttir Leggja til vantraust á hendur Silju Báru Líf bar sigur úr býtum Intuens hafi nýtt sér óttann og kvíðann sem krabbamein valdi til að græða Sinueldur við Elliðavatn „Hrikalega óábyrgt og jafnvel hættulegt“ að senda börnin sín vísvitandi veik á leikskóla Rúta full af ferðamönnum fór út af veginum Vísar gagnrýni verkalýðsleiðtoga til föðurhúsanna Býst við að samningar náist fljótlega og auglýsir eftir starfsfólki Fjórir sinueldar á sólarhring: „Við skulum bara leggjast á bæn og vona að það komi snjór“ Leitað logandi ljósi eftir nýjum kirkjugarði á Selfossi Sjálfsafgreiðslukassar og aukin sjálfvirkni auki vandann Sinueldar, sjúklingar og skafrenningur Reykur sást á flugvallarsvæðinu Töluverður viðbúnaður vegna tilkynningar um kajak Á sjötta hundrað lentu í vandræðum Framtíð Framsóknar, afbrotatölfræði og vankantar á tryggingamarkaði Íslendingar gerðu það sem tröllunum mistókst Þrír sinueldar á innan við sólarhring Kerfið er vandamálið ef það styður ekki nýsköpun Metfjöldi gesta tvo daga í röð Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Heitur matur í boði á ný Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Sinueldur barst í heyrúllur í Hvalfirði Framboðslistinn tilbúinn í Fjarðabyggð Tryggingar lækki verulega verði ráðist í nauðsynlegar úrbætur Átta konur eru í slökkviliðum í Árnessýslu Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Sjá meira
„Hrikalega óábyrgt og jafnvel hættulegt“ að senda börnin sín vísvitandi veik á leikskóla Innlent
„Hrikalega óábyrgt og jafnvel hættulegt“ að senda börnin sín vísvitandi veik á leikskóla Innlent