Frumvarp ráðherra breyttist í þingnefnd 8. desember 2011 11:20
Fjárlagafrumvarpið var samþykkt á Alþingi í gær. Þingheimur hefur bætt við ríkisútgjöld og dregið úr niðurskurði frá því sem var að finna í frumvarpi fjármálaráðherra. Frumvarp til fjárlaga 2012 var fyrsta mál sem lagt var fram á yfirstandandi þingi. Það fór, líkt og lög gera ráð fyrir, í gegnum þrjár umræður á Alþingi og tók við það fjölmörgum breytingum. Meirihluti fjárlaganefndar lagði til aukin útgjöld um 4,5 milljarða króna. Á móti er gert ráð fyrir að tekjur ríkisins aukist um 1,5 milljarða. Raunaukning útgjalda nemur því 3 milljörðum króna. Breytingartillögur meirihlutans voru samþykktar í gær og að því loknu frumvarpið í heild sinni. Alls samþykkti 31 þingmaður frumvarpið en þrír voru á móti. 21 þingmaður sat hjá. Frumvarpið var því samþykkt með minnihluta atkvæða. Velferðarmálin stærst Alls nema útgjöld ríkissjóðs rúmum 536 milljörðum króna, en tekjur 523 milljörðum. Af því fer stærstur hlutinn í málefni velferðarráðuneytisins, eða 227 milljarðar króna. Útgjöld ráðuneytisins nema tæpum 43 prósentum af öllum ríkisútgjöldum. Athygli vekur að næststærsti málaflokkurinn er vaxtagjöld. Alls fara 14,5 prósent af útgjöldum ríkissjóðs í þau. Það er mikil breyting frá því fyrir nokkrum árum, en ríkissjóður greiddi ekki krónu í vaxtagjöld árið 2007. Aðrir stórir málaflokkar eru málefni mennta- og menningarmála sem eru 11,7 prósent ríkisútgjalda, 11,6 prósent fara í innanríkisráðuneytið og 9,6 í fjármálaráðuneytið.140 milljarða viðsnúningur Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra kom upp í pontu í atkvæðagreiðslunni í gær. „Ég er bærilega sáttur við heildarniðurstöðuna, liðlega 20 milljarða halli sem nemur um 1,16 prósentum af vergri landsframleiðslu. Jákvæður frumjöfnuður upp á liðlega 2 prósent af landsframleiðslu, eða um 35 milljarða afgangur frá reglubundnum rekstri ríkisins. Það er tæplega 140 milljarða bati á afkomu ríkisins frá reglubundnum rekstri miðað við árið 2009," sagði Steingrímur.Hann sagði hagvaxtartölur Hagstofu Íslands frá í gær ýta undir forsendur fjárlaganna og gefa tilefni til þess að búast við kraftmeiri bata. Samkvæmt þeim nam hagvöxtur á þriðja ársfjórðungi 4,7 prósentum og hagvöxtur að raungildi fyrstu níu mánuði ársins 3,7 prósentum. Steingrímur sagði fjárlagafrumvarpið sýna einhvern mesta bata í hagkerfi sem sést hefði á Vesturlöndum.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira