Skipulagsstofnun sökuð um aðför að Vestfjörðum 8. desember 2011 17:03 Patreksfjörður. mynd/ egill. „
Bæjarstjórn Vesturbyggðar mótmælir harðlega aðförinni að samfélaginu á sunnanverðum Vestfjörðum með umsögn Skipulagsstofnunar um vegagerð á Vestfjarðavegi 60 frá Eiði í Vattarfirði að Þverá í Kjálkafirði." Svo segir í ályktun sem samþykkt var samhljóða á fundi bæjarstjórnar á Patreksfirði í gærkvöldi í tilefni af áliti Skipulagsstofnunar fyrr í vikunni þess efnis að áformaðar endurbætur á 24 kílómetra vegarkafla valdi óbætanlegum skaða. „Með umsögn sinni leggst Skipulagsstofnun eindregið gegn vegagerð á svæðinu. Skipulagsstofnun er í raun að leggja til gamaldags vegagerð sem er óöruggari og alls ekki í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til nútíma vegaframkvæmda," segir bæjarstjórnin í ályktun sinni. Og ennfremur: „Úrskurður Skipulagsstofnunar ber vott um fyrirfram ákveðnar skoðanir á vegagerð á Vestfjörðum og fullkomna vanþekkingu á staðháttum, samfélagi og lífríki á þessu svæði. Reynslan hefur t.d. sýnt fram á að arnarvarp spillist ekki vegna umferðar bíla heldur vegna annarra ástæðna. Augljóst er á áliti Skipulagsstofnunar að enn á að tefja möguleikana á vegabótum um Vestfjarðaveg nr. 60. Bæjarstjórn Vesturbyggðar harmar ennfremur að Dýrafjarðargöng séu ekki sett á dagskrá fyrr en árið 2018-20. Það er sorglegt að sjá að samgöngubætur á Vestfjörðum séu svo aftarlega í forgangsröðuninni og raun ber vitni og öðrum verkefnum sem síðar voru áætluð sé skotið fram fyrir án fullnægjandi rökstuðnings og fjármögnunar. Bæjarstjórn Vesturbyggðar hvetur Vegagerðina til dáða í verkefnum sínum, þau eru mikilvæg fyrir land og þjóð."
Mest lesið Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði Innlent Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Innlent Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Innlent Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Innlent Strandveiðar bannaðar á morgun Innlent Fleiri fréttir Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Sjá meira