Erlent

Eldri kona hótaði að smita gjaldkera af alnæmi

Þekkir þú konuna? Mynd af ræningjanum úr öryggismyndavél bankans
Þekkir þú konuna? Mynd af ræningjanum úr öryggismyndavél bankans
Eldri kona rændi banka í Colorado í Bandaríkjunum á dögunum með því að sýna gjaldkera miða frá lækni sem sýndi að hún væri smituð af alnæmi. Hún sagði við gjaldkerann að ef hann afhenti henni ekki peninga yfir borðið myndi hún smita hann af alnæmi.

Talsmaður lögreglunnar segir að konunnar sé leitað - hún er á aldrinum 55 til 75 ára gömul og var með klút fyrir andlitinu. Gjaldkerinn lét hana hafa peninga og labbaði hún út með háa upphæð í reiðufé.

Lögreglan og Alríkislögreglan hafa birt myndir úr ráninu, og auglýsir eftir einhverjum sem kann að þekkja konuna. Konan notaði engin vopn í ráninu og enginn slasaðist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×