Upplýsinganefnd fær lögfræðing til starfa 21. desember 2011 08:00 Ragnhildur Arnljótsdóttir „
Það er eitt af okkar forgangsmálum að vinna á þessum hala,“ segir Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, um tafir á afgreiðslu kærumála hjá úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Í Fréttablaðinu í gær kom fram að úrskurðarnefndin var sextán mánuði að úrskurða í kæru blaðsins vegna synjunar menntamálaráðuneytisins á afhendingu gagna tengdum deilum í Iðnskólanum í Hafnarfirði. Sagði formaður nefndarinnar, Trausti Fannar Valsson, þetta óhæfilega langan málsmeðferðartíma. Eðlilegur tími væri frá einum og hálfum mánuði upp í þrjá mánuði. Ástæðan fyrir töfunum væri skortur á mannafla. „Eftir fund með formanni nefndarinnar var brugðist við með því að auglýsa eftir lögfræðingi sem við reiknum með að taki til starfa í byrjun janúar,“ segir Ragnhildur. Hún kveður markmiðið að starfsmaðurinn geti helgað sig því hlutverki að vera starfsmaður úrskurðarnefndarinnar. Því hefur hingað til aðeins verið sinnt í hlutastarfi. Ragnhildur segir að formaður úrskurðarnefndarinnar hafi undanfarnar vikur, í samráði við ráðuneytið, falið nokkrum lögfræðingum að undirbúa úrskurði í málum til að freista þess að vinna á málahalanum. „En fyrst og fremst höldum við að það sé mikilvægt að við tryggjum að hér sé starfsmaður sem geti sinnt þessu sem aðalverkefni. Oft er eðli þessara mála þannig að það er áríðandi að niðurstaða fáist sem fyrst,“ segir Ragnhildur og bendir á að upplýsingarnar sem kærumálin snúist um kunni að verða gagnslitlar ef málin tefjist of lengi. - gar
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira