Sjötugt burðardýr með kókaín 17. desember 2011 10:00 Íblandað hefði kókaínmagnið verið nær fjögur kíló eða rúmlega 3,7.
Ríkissaksóknari hefur ákært fjóra menn fyrir Héraðsdómi Reykjaness fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Mennirnir sem allir eru íslenskir lögðu á ráðin og stóðu saman að innflutningi frá Danmörku á samtals ríflega 877 grömmum af kókaíni. Við efnarannsókn kom í ljós að efnið var mjög sterkt og hefði reynst unnt að framleiða úr því nær fjögur kíló af svokölluðum neysluskömmtum. Þremur mannanna sem eru á milli tvítugs og þrítugs er gefið að sök að hafa lagt á ráðin um innflutninginn, þar með talið fjármögnun, skipulagningu og ferðatilhögun nokkru áður en látið var til skarar skríða. Einn þeirra fékk svo mann um sjötugt til fararinnar, veitti honum leiðbeiningar um ferðatilhögun og afhenti honum farsíma, bókunarnúmer flugs og 200 þúsund krónur í reiðufé fyrir ferðakostnaði og uppihaldi. Maðurinn hitti síðan einn þremenninganna í Kaupmannahöfn, tók við fíkniefnunum af honum og flaug síðan til landsins með þau falin í farangri sínum. Tollverðir fundu svo kókaínið í fórum hans þegar hann kom. Þá er einn ungu mannanna einnig ákærður fyrir vörslu á kannabisefnum sem hann afhenti lögreglu þegar hann var handtekinn.- jss
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira