Bremsa brást er vindmylla fauk af mastri 8. desember 2011 06:00 Bóndinn í Belgsholti vonast til að ekki taki meira en tvo mánuði að koma í gagnið vindmyllunni sem sá bænum fyrir rafmagni og veitti orku inn á almenna kerfið að auki þar til spaðarnir og mylluhausinn sviptust af. Mynd/Belgsholt.is
Myllan sem fauk Bóndinn í Belgsholti vonast til að ekki taki meira en tvo mánuði að koma í gagnið vindmyllunni sem sá bænum fyrir rafmagni og veitti orku inn á almenna kerfið að auki þar til spaðarnir og mylluhausinn sviptust af.Mynd/Belgsholt.is „Það er ekki mikið sem hægt er að segja við svona uppákomu,“ segir Friðrik Sigurðsson, talsmaður sænska fyrirtækisins Hannevind, sem framleiddi vindmylluna sem stórskemmdist í Belgsholti í Leirársveit. Vindmyllan í Belgsholti var sett upp í byrjun júlí í sumar. Hún er eina vindmyllan hérlendis sem tengd er almenna raforkukerfinu. Mótorinn og spaðinn fuku af myllunni í hvassviðri í síðustu viku. Haraldur Magnússon í Belgsholti segist hafa séð til myllunnar um fimmtán mínútum fyrir óhappið. Þá hafi spaðarnir snúið öfugt og myllan í raun unnið gegn vindinum. Hann hafi þó ákveðið að aðhafast ekki enda ætti sjálfvirkur búnaður að sjá til þess að haga stefnunni eftir vindum. „Þegar ég kom úr fjósinu rúmlega tíu sá ég að hún var komin niður. Ég veit ekki hvort það var forritið eða nemar sem eiga að lesa úr aðstæðum sem brugðust,“ segir hann. „Nú verður að vinna markvisst að því að komast að raunverulegum orsökum óhappsins. Það er ekki létt að segja til um hvað setti þetta ferli í gang, þar sem enginn sjónarvottur var að því, svo það einkennist af getgátum sem allar geta átt við rök að styðjast eins og er,“ segir Friðrik. Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær endurbygging vindmyllunnar hefst. Haraldur segist vonast til að verkið taki hann ekki meira en tvo mánuði. „Það verður farið gegnum allt frá grunni með innlendum starfsmönnum ásamt frumhönnuði vindmyllunnar, sem verður með í því verki,“ segir Friðrik, sem nú kveður unnið að því að panta þá hluti sem skipta þurfi um. Síðan verði gerð áætlun um framgang endurbyggingarinnar. „Útkoman verður að vera sú að við fáum betri vindmyllu sem nýtist helst sem flestum sem hyggja á græna orkuöflun til framtíðar.“ Á heimasíðu Belgsholts segir að myllan hafi unnið eðilega í snörpum vindhviðum þennan þriðjudagsmorgun þar til um klukkan 9.35 að hún hafi snúið sér á hlið eins og forritið gefi skipun um. Þá eigi bremsubúnaður að stöðva spaðana og myllan að snúa sér þannig að sem minnst átak sé á þá. „En það sem gerist er að spaðarnir stöðvast ekki og þegar stjórnbúnaðurinn hefur snúið mylluhúsinu í 180 gráður á vindstefnu án þess að þeir hafi stöðvast verður of mikið álag á spaðana sem eru úr trefjagleri og einn spaðinn brotnar. Við það kemur mjög mikið átak á festingar og þar sem mylluhúsið er rúmt tonn að þyngd þá losnar það af legunni og fellur til jarðar,“ segir á belgsholt.is gar@frettabladid.is
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira