Foreldrar setji ekki börn ofan í innkaupakerrur 8. desember 2011 06:00 Innkaupakerrur eru hannaðar fyrir vörur en ekki börn sem standa upp í þeim .fréttablaðið/vilhelm
Fjöldi barna slasast árlega við það að falla úr innkaupakerrum eða klemma sig á hlutum í og á kerrunum. Niðurstöður rannsókna sýna að séu viðvörunarspjöld í kerrunum láta foreldrar börn sín síður sitja innan um vörurnar í þeim. Á árunum 2002 til 2004 slösuðust um 100 börn hvert ár við að detta úr innkaupakerru. Herdís Storgaard, verkefnisstjóri átaksins Árvekni, kveðst hafa fengið upplýsingar um fjöldann þegar hún fór í átaksverkefni ásamt Landsbjörgu og fleirum árið 2005. „Ég veit ekki hver fjöldinn er nú en mér finnst ég sjá fleiri börn standa í innkaupakerrum en áður og ég fæ fleiri hringingar um slíkt. Þetta er jafnframt til umræðu á öllum fræðslufundum sem ég fer á. Fólk hefur áhyggjur og því líður illa þegar það sér börn í sjálfum innkaupakerrunum en kann ekki við að nefna þetta við foreldrana.“ Afleiðingar slysanna hafa orðið mjög alvarlegar, að sögn Herdísar. „Innkaupakerrurnar geta til dæmis farið á hvolf og börnin lent undir þeim, klemmst og hlotið varanlegan skaða af. Það er dæmi um slíkt.“ Í Sálfræðiritinu, tímariti Sálfræðingafélags Íslands, er greint frá rannsókn á því hvort hægt væri að hafa áhrif á þá hegðun foreldra að láta börn sín ofan í innkaupakerrur með því að koma fyrir viðvörunarspjaldi með mynd í þeim. Rannsóknin var gerð í fjórum verslunum á höfuðborgarsvæðinu, Krónunni Bíldshöfða og Lindum, Hagkaup Skeifunni og verslun Hagkaups við Litlatún í Garðabæ, að því er segir í tímaritinu. Fylgst var með þeim viðskiptavinum sem voru með börn á tímabilinu september til desember í fyrra og athugað hvort börnin voru sett ofan í kerruna sjálfa á meðan á verslunarleiðangrinum stóð. Helstu niðurstöður voru þær að hægt var að hafa mikil áhrif á þessa hegðun foreldranna. Rannsakendur benda á að heildarkostnaður við merkingar á hverri kerru hafi verið 43 krónur og sú ályktun dregin að ef allar kerrur yrðu merktar myndi kostnaður vafalítið minnka töluvert. Herdís bendir á að foreldrar séu oft þreyttir eftir langan vinnudag þegar þeir fara í innkaupaleiðangur. „Fólk er oft með börn á svipuðum aldri sem einnig eru orðin þreytt. Þá freistast það til að setja annað í sjálfa kerruna. Verslanir mættu bjóða upp á fleiri tvíburakerrur. Það þarf hins vegar að minna foreldra á að innkaupakerrur eru hannaðar fyrir vörur en ekki fyrir barn sem stendur upp í þeim. Það er allt annað mál að setja börn í sætin sem toguð eru út og nokkur fyrirtæki eru til fyrirmyndar hvað þau varðar með því að setja beisli í hverja kerru.“ ibs@frettabladid.is
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira