Aldrei mælst eiturefni í fóðri frá Líflandi 5. desember 2011 04:00 Fóðri er dælt beint frá skipi í geymslur og kemst lítt í snertingu við útblástur. fréttablaðið/gva fréttablaðið/gva
Matvælastofnun (MAST) segir að „seint verði unnt að segja“ það æskilegt að fóðurframleiðsla sé innan þynningarsvæðis mengandi starfsemi, í skriflegu svari við fyrirspurn Fréttablaðsins um starfsemi Líflands á iðnaðarsvæðinu á Grundartanga. Hins vegar segir í svarinu að niðurstöður úr mælingum sem gerðar hafa verið á óæskilegum efnum í fóðri hjá fyrirtækinu á Grundartanga hafi ekki gefið neina vísbendingu um að fóðrið hafi mengast á staðnum. Fréttablaðið greindi frá því nýlega að Umhverfisvaktin í Hvalfirði (UH) gerði alvarlegar athugasemdir við rekstur Líflands í ályktun fyrsta aðalfundar félagsins. UH sendi Matvælastofnun erindi vegna málsins og er það til umfjöllunar hjá stofnuninni. Matvælastofnun annast eftirlit með fóðri en Umhverfisstofnun sér um mengunarvarnaeftirlit. Matvælastofnun hefur meðal annars tekið sýni af fóðri hjá Líflandi og mælt í því flúor, dioxín, kadmíum, sveppaeitur og salmonellu. Niðurstöður úr öllum sýnunum voru í lagi. Í svari MAST kemur fram að stofnunin muni áfram fylgjast með framleiðslunni hvað þetta varðar og hefur jafnframt bent fyrirtækinu á að það þurfi að vakta það að fóðrið mengist ekki. - shá
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira