Bændur geta framleitt sína orku sjálfir 28. nóvember 2011 06:00 Víða um land hefur kornrækt náð fótfestu, hálm sem fellur til má nýta sem lífrænan orkugjafa. fréttablaðið/vilhelm
Erna Bjarnadóttir Bændasamtök Íslands (BÍ) og Landbúnaðarháskólinn (Lbhí) telja raunhæft að íslenskur landbúnaður verði sjálfbær um orku með því að nýta lífræn hráefni til orkuframleiðslu. Átaksverkefni í orkumálum landbúnaðarins hefur verið hleypt af stokkunum með það að takmarki að minnka aðkeypta orku bænda um 20 prósent fyrir árslok 2015 og um 80 prósent fyrir árslok 2020. Eins og segir í greinargerð til fjárlaganefndar frá BÍ og Lbhí miðar verkefnið að því að innleiða í íslenskan landbúnað þekkingu á framleiðslu og nýtingu orku úr lífrænum hráefnum, sem falla til á búunum eða í nágrenni þeirra, eða eru sérstaklega framleidd í þeim tilgangi. Hagsmunirnir eru miklir fyrir bændur og samfélagið í heild. Áætluð olíunotkun landbúnaðarins í dag er um sjö milljónir lítra á ári. Það jafngildir um einum milljarði króna á núvirði miðað við verð á litaðri olíu eða um 1,7 milljarðar króna á fullu verði. Þá er sparnaður vegna raforkunotkunar ekki meðtalinn, en ekki hefur verið lagt mat á hversu mikil sú orkunotkun er. Nýting lífrænna hráefna er margvísleg. Þekkt er framleiðsla hauggass úr mykju en jafnframt eru möguleikar að nýta hálm, sem er aukaafurð kornræktar, til orkuframleiðslu. Repjurækt til olíuframleiðslu er þegar hafin og vaxtarmöguleikar fyrir hendi, eins og Erna Bjarnadóttir, forstöðumaður félagssviðs BÍ, útskýrir. Er þá aðeins fátt eitt talið. BÍ og Lbhí hyggjast ráða sérstaka starfsmenn vegna verkefnisins tímabundið, en jafnframt koma sérfræðingar BÍ og skólans að vinnunni eftir því sem þörf krefur. Þegar spurt er hversu raunhæft verkefni eins og þetta sé bendir Erna á að í Noregi sé stefnt á að landbúnaður þar í landi verði óháður jarðefnaeldsneyti árið 2030. „Málið er komið á dagskrá hjá samtökunum en hversu kröftuglega við getum gengið til verks ræðst af því hve miklu fjármagni verður úr að spila og hvernig gengur að afla samstarfsaðila. Við finnum fyrir miklum áhuga“, segir hún aðspurð um fjármögnun verkefnisins en sótt er um 20 milljón króna ríkisstyrk og áframhaldandi stuðning við verkefnið til ársloka 2015. Fjárfesting í átaki sem þessu, segir í greinargerðinni, hefur alla burði til að skila sér margfalt til baka til samfélagsins í aukinni sjálfbærni landbúnaðarins, minni gjaldeyrisnotkun, auknu fæðuöryggi og fjölbreyttari atvinnu í dreifðum byggðum landsins. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira