Félagsskiptaglugginn er nú lokaður - hverjir fóru hvert Stefán Árni Pálsson skrifar 31. ágúst 2011 22:18 Per Mertesacker gekk til liðs við Arsenal. Mynd. / Getty Images
Fjölmörg félagsskipti gengu í gegn í dag en félagsskiptaglugginn lokaði kl. 22 að íslenskum tíma í kvöld. Þetta er ávallt gríðarlega spennandi dagur fyrir knattspyrnuáhugamanninn og ekki síst fyrir knattspyrnufélögin. Vísir tók saman atburðarrásina í dag og má sjá helstu félagsskipti hér að neðan. Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur haft mikið að gera undanfarna daga en félagið náði að styrkja lið sitt gríðarlega mikið undir lok félagsskiptagluggans. Andre Santos skrifaði undir samning við félagið en hann kom frá tyrkneska félaginu Fenerbache. Þessi 28 ára Brassi er vinstri bakvörður.Yossi Benayoun gekk einnig til liðs við Arsenal frá Chelsea en félagsskiptin gengu í gegn rétt fyrir lok gluggans og því ekki vitað hvers eðlis samningurinn er. Félagið hefur einnig fengið miðvörðinn Per Mertesacker frá Werder Bremen en leikmaðurinn gerði 4 ára samning við skytturnar og talið er að kaupverðið sé um 9 milljónir punda. Suður-Kóreski leikmaðurinn Park Chu Young skrifaði undir samning við Arsenal í gær. Síðast en ekki síst þá gekk Mikel Arteta til félagsins fyrir stundu, en miðjumaðurinn kemur frá Everton og hefur verið einn allra besti leikmaður félagsins síðustu ár. Arsenal greiðir 10 milljónir punda fyrir Arteta og skrifaði leikmaðurinn undir 4 ára samning við félagið.Nicklas Bendtner hefur yfirgefið Arsenal og verður hjá Sunderland út leiktíðina en leikmaðurinn fer frá félaginu á lánssamningi. Chelsea var rétt í þessu að festa kaup á Portúgalanum, Raul Meireles, frá Liverpool en Roman Abramovich, eigandi Chelsea, þarf að greiða 12 milljónir punda fyrir þennan frábæra miðjumann. Meireles skrifaði undir 4 ára samning við Chelsea.Miralem Pjanic fór frá franska liðinu Lyon til Roma á Ítalíu, en kaupverðið mun vera um 9 milljónir punda og skrifaði Pjanic undir 4 ára samning við ítalska félagið. Brasilíski miðjumaðurinn Elias gekk í raðið portúgalska félagsins Sporting Lissabon, en þessi snjalli leikmaður sló í gegn hjá Atletico Madrid. Sporting greiðir um 8 milljónir punda fyrir Elias, en félagið hefur fengið fjöldann allan af nýjum leikmönnum í sumar og greinilegt að liðið ætlar sér stóra hluti. Þau félagsskipti sem komu líklega mest á óvart var þegar Owen Hargreaves skrifaði undir hjá Manchester City í dag, en hann kemur til félagsins á frjálsri sölu. Hargreaves hefur verið leikmaður hjá erkifjendunum í Manchester United síðan árið 2007 en hefur glímt við þráðlát meiðsli síðastliðin ár. Atletico Madrid tryggði sér þjónustu brasilíska miðjumannsins Diego en hann fór til félagsins á láni frá Wolfsburg. Leikmaðurinn verður í það minnsta í eitt ár hjá þeim spænsku. Enska knattspyrnufélagið Wigan fékk til liðsins þrjá sterka leikmenn fyrir baráttuna í ensku úrvalsdeildinni á komandi leiktíð. Patrick Van Aaanholt fór til félagsins frá Chelsea á láni og Shaun Maloney skrifaði undir tveggja ára samning við félagið en hann kom frá skoska félaginu Celtic. Albert Crusat samdi við félagið í gær en hann kemur til Wigan frá spænska liðinu Almeria.Gael Kakuta fór á láni til Bolton Wanderers frá Chelsea, en leikmaðurinn var einnig á láni hjá Fulham á síðustu leiktíð. Bolton fékk einnig til liðsins framherjann, David Ngog, frá Liverpool, en talið er að félagið hafi greitt um 4 milljónir punda fyrir leikmanninn. Íslandsvinurinn, James Hurst, sem lék með ÍBV á síðustu leiktíð og sló heldur betur í gegn skrifaði undir lánssamning við enska 1. deildarfélagið Blackpool. Leikmaðurinn hefur verið hjá West Bromwich Albion síðastliðið ár en ekki fengið mörg tækifæri með aðalliðinu.Christian Poulsen fór frá Liverpool til franska félagsins Evian Thonon Gaillard, en leikmaðurinn náði sér aldrei á strik fyrir enska félagið. Joe Cole fór einnig til Frakklands en hann gekk í raðir Lille, en Liverpool lánaði leikmanninn til Lille í eitt ár. Lille vann frönsku úrvalsdeildina á síðustu leiktíð og því eigum við eftir að sjá Cole í Meistaradeild Evrópu í vetur.Mateja Kezman sem margir muna kannski eftir þegar hann lék með Chelsea gekk til liðsins BATE Borisov frá Hvíta-Rússlandi. Kezman hefur verið á töluverðu flakki undanfarinn ár en hann lék í Kína á síðustu leiktíð. BATE Borisov sló FH út úr forkeppni Meistaradeildar Evrópu árið 2007 og síðan aftur árið 2010. Valsmenn urði einnig fyrir barðinu á þeim árið 2008 svo við Íslengingar þekkjum vel til félagsins. Miðjumaðurinn, Scott Parker, var í dag seldur frá West Ham United til Tottenham Hotspurs, en kaupverðið ku vera 6 milljónir punda. Parker var valinn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili og var því gríðarlega eftirsóttur í sumar. West Ham féll niður í ensku 1. deildina á síðasta tímabili og gert var ráð fyrir því að félagið gæti ekki haldið í þennan frábæra leikmann. West Ham United gerði eins árs lánssamning við David Bentley frá Tottenham Hotspurs, en leikmaðurinn mun án efa styrkja West Ham í baráttunni um að komast aftur upp í úrvalsdeildina. Wolfsburg hefur fengið Hvít-Rússann, Alexander Hleb, á láni út leiktíðina frá Barcelona. Leikmaðurinn var lánaður til Birmingham á síðustu leiktíð og þar á undan var hann á láni hjá þýska félaginu Suttgart, en Hleb náði sér aldrei á strik hjá Barcelona. Inter Milan festi kaup á tveimur frábærum leikmönnum í dag en þeir Mauro Zarate og Diego Forlan gengu báðir til félagins á lokaspretti gluggans. Diego Forlan hefur verið heitasti framherjinn í Evrópu undanfarinn ár, en hann skrifaði undir tveggja ára samning við klúbbinn. Daninn Simon Kjaer fór til ítalska félagsins Roma á láni frá Wolfsburg, en samningurinn er á þá leið að Roma getur síðan fest kaup á þessum 22 ára varnarmanni eftir tímabilið.Craig Bellamy gengur til lið við sitt gamla félag Liverpool frá Manchester City, en leikmaðurinn hefur verið á láni hjá Cardiff City. Bellamy gerði 2 ára samning við Liverpool, en hann lék með félaginu tímabilið 2006-07. Leicester City hefur fest kaup á framherjanum, Jermaine Beckford, frá Everton en 1. deildarfélagið greiðir 3 milljónir punda fyrir leikmanninn.Wilson Palacios gekk til liðs við Stoke City frá Tottenham Hotspurs, en leikmaðurinn hefur ekki fengið mörg tækifæri hjá Harry Redknapp, knattspyrnustjóra Tottenham. Kaupverðið mun vera 8 milljónir punda. Peter Crouch hefur einnig samið við Stoke City en leikmaðurinn kemur líka frá Tottenham Hotspurs. Kaupverðið mun vera í kringum 10 milljónir punda.Shaun Wright Phillips samdi við QPR og fer til félagsins frá Manchester City. Phillips hefur lítið sem ekkert fengið að spreyta sig síðastliðið ár og lengi viljað yfirgefa klúbbinn. QPR fékk líka Anton Ferdinand frá Sunderland en misstókst að fá Sebastien Bassong frá Tottenham. Fulham keypti framherjann Bryan Ruiz frá FC Twente en Newcastle var nærri því búinn að stela honum af þeim á lokasprettinum. Ruiz vildi hinsvegar ekki fara norður til Newcastle.Íslendingar í útrás Guðjón Pétur Lýðsson, leikmaður Vals, fór til sænska félagsins Helsingborg á láni út leiktíðina og leikur því ekki meira með Valsmönnum það sem eftir er af tímabilinu.Ingimund Níels Óskarsson, leikmaður Fylkis, hefur verið lánaður til norska 1. deildarfélagsins Sandnes Ulf en þar hittir hann Íslendinginn Steinþór Freyr Þorsteinsson. Ingimundur mun leika með norska félaginu út leiktíðina en liðið er í efsta sæti deildarinnar og á leiðinni í úrvalsdeildina.Haraldur Freyr Guðmundsson, leikmaður Keflavík, hefur verið lánaður til Start í Noregi, en leikmaðurinn mun leika með félaginu út tímabilið. Start er í harðri fallbaráttu í norsku úrvalsdeildinni og mun Haraldur reyna að styrkja varnarleik félagsins.Uppfært:Everton missti eina þrjá leikmenn í félagsskiptaglugganum í gær. Einn af þeim var framherjinn Yakubu sem gekk í raðir Blackburn Rovers. Þrátt fyrir að Everton missti nokkra leikmenn glugganum náði David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, að klófesta tvo leikmenn í þeirra stað, en þeir Royston Drenthe og Denis Stracqualursi komu til liðsins á láni út tímabilið. Portúgalski framherjinn, Orlando Sa, gekk til liðs við Fulham og skrifaði þessi 23 ára leikmaður undir 3 ára samning við klúbbinn.Anton Ferdinand skrifaði undir þriggja ára samning við nýliðana í QPR, en hann kemur til Heiðars Helgusonar og félaga frá Sunderland. Anton Ferdinand er bróðir Rio Ferdinand, leikmaður Man. Utd. Stoke City náði að styrkja lið sitt virkilega mikið í félagsskiptaglugganum í gær en sóknarmaðurinn Cameron Jerome gekk í raðir félagsins frá Birmingham. Kaupverið ku vera um 5 milljónir punda og skrifaði Jerome undir 4 ára samning við Stoke. Aston Villa náði að nýta sér félagsskiptagluggann og fékk til liðsins tvo sterka leikmenn en þeir Jermaine Jenas og Alan Hutton fóru til Villa frá Tottenham. Jenas kemur til liðsins á láni út tímabilið en Alan Hutton skrifaðir undir 4 ára samning við félagið. Kaupverðið á Hutton mun vera 4 milljónir punda.
Fótbolti Mest lesið Fóru yfir lætin í Kópavogi: „Höskuldur tryllist strax frá byrjun“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin eftir jöfnunarmark Blika Íslenski boltinn Barðist fyrir Viggó við erfiðar aðstæður: „Ég vildi þetta ekki“ Handbolti Enginn Íslendingur á heimsleikunum í fyrsta sinn í sautján ár Sport Bestu mörkin: Völdu draumalið Íslands á EM og engin þeirra eru eins Fótbolti Sjáðu mörkin úr Bestu: Valur rústaði KR og tvö rauð fóru á loft í Kópavogi Íslenski boltinn Sjáðu langt viðtal við Óskar eftir 6-1 tap: „Nauðsynlegt fyrir íslenskan fótbolta að KR verkefnið sé til“ Sport Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Körfubolti Dramatísk endurkoma þýðir að Inter Miami þarf að mæta PSG Sport Risa skandall þar sem sænskur maður hagræðir fótboltaleikjum Sport Fleiri fréttir Óskar láti gagnrýnisraddir úr Vesturbæ sem vind um eyru þjóta Fóru yfir lætin í Kópavogi: „Höskuldur tryllist strax frá byrjun“ Sjáðu mörkin úr Bestu: Valur rústaði KR og tvö rauð fóru á loft í Kópavogi Bestu mörkin: Völdu draumalið Íslands á EM og engin þeirra eru eins Lofar að taka „Siu“ fagn Ronaldo ef hann skorar á móti Messi Halldór: Sundur spiluðum Fram Sjáðu slagsmálin eftir jöfnunarmark Blika Atletico Madrid situr eftir þrátt fyrir sigur Uppgjörið: Valur-KR 6-1 | Valsmenn rassskelltu KR-inga Uppgjörið: ÍBV-Afturelding 1-2 | Tvö mörk á tveimur mínútum tryggðu sögulegan sigur Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Uppgjörið: Breiðablik - Fram 1-1 | Dramatík í Kópavogi Elísabet stefnir á risa afrek með Belgíu á EM Segja Hákon Arnar undir smásjá stórliðs Farnar á EM í Sviss en koma fyrst við í Serbíu Varð fyrir vonbrigðum með samningstilboð Liverpool Leik á Ítalíu aflýst vegna óeirða Aldrei séð föður sinn jafn glaðan og sáttan í einu og sama verkefninu Sjáðu mörkin úr Bestu þar sem Gylfi Þór fór mikinn og glæsimark var skorað Máluðu yfir andlit „svikarans“ Hitaði upp fyrir EM með stórleik: Vildi ná þrennunni en þjálfarinn sagði nei Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool „Gæðin í liðinu munu alltaf skora mörk“ Uppgjör: ÍA-Stjarnan 0-3 | Stjarnan upp í þriðja sætið eftir sigur á botnliðinu Uppgjör: KA-Víkingur 0-2 | Gylfi maðurinn á bak við sigur Víkinga Tíu leikmenn Real Madrid lönduðu fyrsta sigri Xabi Alonso Fimmtán ára strákur sló met Martins Ödegaard Taplausir ÍR-ingar juku forskot sitt á toppnum Fyrirmyndarnemanda og fótboltastjörnu vísað úr landi Tíu Þórsarar lönduðu fyrsta sigri sínum í þessum mánuði Sjá meira
Sjáðu langt viðtal við Óskar eftir 6-1 tap: „Nauðsynlegt fyrir íslenskan fótbolta að KR verkefnið sé til“ Sport
Sjáðu langt viðtal við Óskar eftir 6-1 tap: „Nauðsynlegt fyrir íslenskan fótbolta að KR verkefnið sé til“ Sport