Haldið upp á afmæli Ítalíu 3. júní 2011 03:30 Hamid Karzai, forseti Afganistans, horfir á sýninguna meðan Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna, og Amr Moussa, framkvæmdastjóri Arababandalagsins, eiga í alvörugefnum samræðum. nordicphotos/AFP
Ítalir efndu í gær til hátíðarhalda í tilefni þess að 150 ár eru liðin frá því að Ítalía sameinaðist í eitt ríki og 50 ár frá því að núverandi lýðveldisfyrirkomulag var tekið upp. Þjóðhöfðingjum frá áttatíu löndum var boðið til Rómar þar sem þeir komu sér vel fyrir í gærmorgun og fylgdust með hersýningu. Um kvöldið var svo snæddur hátíðarkvöldverður í boði Giorgio Napolitano forseta í Quirinale-höllinni. Alls tóku um fjögur þúsund hermenn þátt í hersýningunni en með henni fylgdust tuttugu þúsund manns. Meðal gestanna voru Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff, en þarna voru einnig Dmitrí Medvedev Rússlandsforseti og Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna. Einnig voru mættir Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, og Herman van Rompuy, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins. Þarna var einnig Amr Moussa, framkvæmdastjóri Arababandalagsins, og þarna voru einnig forsetar Ísraels og Afganistans. Silvio Berlusconi, hinn umdeildi forsætisráðherra Ítalíu, naut sín í miðju atburðanna og lék á als oddi. Umberto Bossi, fyrrverandi samstarfsmaður Berlusconi í pólitíkinni en núverandi fjandvinur hans, lét hins vegar ekki sjá sig. Napolitano forseti gaf athöfnunum hins vegar virðulegan blæ, mitt í umróti hneykslismála sem Berlusconi hefur glímt við síðustu vikur og mánuði. Í gær var nákvæmlega hálf öld liðin frá því að Ítalir stofnuðu lýðveldi á rústum fasistaríkis Mussolini einræðisherra. Hinn 17. mars síðastliðinn héldu Ítalir hins vegar upp á annað afmæli, sem einnig blandaðist inn í hátíðarhöldin í gær, en þá voru 150 ár liðin frá því að ítölsku furstadæminsameinuðust í eitt ríki. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Innlent Fleiri fréttir Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Sjá meira