Erlent

Absinthe leyft í Frakklandi á ný

Leyft á ný Drykkurinn dulúðlegi absinthe hefur verið leyfður í Frakklandi eftir að hafa verið bannað í nær heila öld.
Leyft á ný Drykkurinn dulúðlegi absinthe hefur verið leyfður í Frakklandi eftir að hafa verið bannað í nær heila öld. MYND/AFP
Franskir vínunnendur geta nú glaðst því að drykkurinn görótti absinthe, eða malurtarbrennivín, hefur verið leyfður eftir að sölubann frá árinu 1915 var afnumið af franska þinginu.

Ættu flöskurnar af drykknum grænleita að vera komnar í hillur verslana á næstu dögum. Í frétt BBC kemur fram að drykkurinn, sem er alræmdur fyrir grænan lit og görótt áhrif, hafi verið bannaður á sínum tíma sökum meinlegra áhrifa. Absinthe hefur verið leyft í öðrum ríkjum ESB síðan 1988.- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×