Send heim í fjárlagadeilu 8. apríl 2011 06:00 Harry Reid og John Boehner. Leiðtogarnir á Bandaríkjaþingi hafa verið á stöðugum fundum undanfarið til að leysa deilu um fjárlög ársins. Hluti ríkisstarfsmanna verður mögulega sendur heim vegna fjárskorts á næstu dögum. Mynd/AP
Leiðtogar demókrata og repúblikana á Bandaríkjaþingi hafa fram á síðustu stundu ekki náð samkomulagi um fjárlög ársins. Þeir hafa því verið á stöðugum fundum síðustu daga, því takist ekki samkomulag áður en fjárheimildir ríkissjóðs renna út, sem er í dag, þá yrðu margir ríkisstarfsmenn sendir heim og þjónusta ríkisins myndi versna til muna, þótt ekki muni starfsemi ríkisins stöðvast alveg. „Nú þegar efnahagslífið er enn að komast út úr óvenju djúpri kreppu, þá væri það óafsakanlegt – að teknu tilliti til þess hve litlu munar á milli flokkanna þegar að tölum kemur – að við gætum ekki gert þetta,“ sagði Barack Obama Bandaríkjaforseta seint á miðvikudagskvöld. Repúblikanar vilja helst 73 milljarða dala niðurskurð í ríkisfjármálum, en hafa þó fallist á 40 milljarða. Demókratar vilja hins vegar ekki skera meira niður en 33 milljarða dala. Það sem á milli ber eru því sjö milljarðar dala. Síðast kom álíka staða upp í lok árs 1995 þar sem Bill Clinton forseti neitaði að skrifa undir fjárlög frá repúblikönum á þingi. Þá voru ríkisstarfsmenn, aðrir en þeir sem sinna bráðnauðsynlegum störfum, sendir heim fyrst í eina viku í nóvember og svo í þrjár vikur í desember og fram yfir áramót. Málið þótti koma Clinton afar vel og telja stjórnmálaskýrendur að þar hafi hann unnið sig upp í áliti þjóðarinnar í aðdraganda kosninga sama ár. - gb, þj
Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Tómas kominn aftur til starfa Innlent Fleiri fréttir Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Sjá meira