Yfir 300 þúsund hafa flúið frá Líbíu 24. mars 2011 05:00 Uppreisnarmenn í austanverðu landinu forða sér undan árásum liðsmanna Gaddafís.nordicphotos/AFP
Barack Obama Bandaríkjaforseti ítrekaði í gær að innrás á landi í Líbíu til að koma Múammar Gaddafí frá völdum kæmi ekki til greina. Í gær, á fimmta degi loftárása Bandaríkjamanna, Frakka, Breta og fleiri þjóða, hafði engin lausn fengist á innbyrðis ágreiningi árásarríkjanna né heldur á ágreiningi þeirra við önnur ríki um markmið og skipulag aðgerðanna. Þó er stefnt að því að NATO taki að sér yfirstjórn árásanna á næstu dögum. Í næstu viku verður haldinn í London fundur fulltrúa frá Bandaríkjunum, Evrópuríkjum, arabaríkjum og Afríkuríkjum, þar sem rætt verður um ástandið í Líbíu og aðgerðir Vesturlanda. Tilgangurinn er að reyna að skapa samstöðu um aðgerðirnar. Árásirnar hafa verið gagnrýndar fyrir að hafa kostað almenna borgara lífið, en varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna bar það til baka í gær og sagði engar sannanir fyrir því. Í gær voru harðar árásir gerðar á borgina Misrata í vesturhluta landsins, skammt frá höfuðborginni Trípolí, þar sem Múammar Gaddafí er með höfuðstöðvar. Svo virtist sem árásirnar hefðu veikt herlið Gaddafís í Misrata verulega. Meira en 300 þúsund manns hafa flúið frá Líbíu síðan átök hófust þar milli uppreisnarmanna og liðsmanna stjórnar Gaddafís. „Ég hef miklar áhyggjur af áhrifum átakanna á almenning,“ sagði Rashid Khalikov, sem sér um skipulagningu hjálparstarfs á vegum Sameinuðu þjóðanna í Líbíu. Hann heimsótti Líbíu dagana 12. til 16. mars og sá miklar skemmdir á íbúðarhúsnæði, meðal annars í bænum Zawiya í vesturhluta landsins. Sameinuðu þjóðirnar hafa kallað allt erlent starfsfólk sitt frá Líbíu og hafa hikað við að biðja innlent starfsfólk sitt um að ferðast um landið. „Við erum ekki viss um að það sé óhætt fyrir það að gera nokkurn skapaðan hlut,“ sagði Khalikov. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Vísbendingar um aukna kjörsókn Innlent Fleiri fréttir Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Sjá meira