Obama: Dagur egypsku þjóðarinnar 11. febrúar 2011 20:15 Barack Obama flutti stutt ávarp frá Hvíta húsinu á níunda tímanum í kvöld um sögulega afsögn Egyptalandsforseta. Mynd/AP
Barack Obama, Bandaríkjaforseti, segir afsögn Hosni Mubaraks ekki vera endapunkt heldur upphafið af miklum breytingum í Egyptalandi. Umróti undanfarna daga fylgi umtalsverð tækifæri. Obama segir daginn í dag tilheyra egypsku þjóðinni. „Egyptaland verður aldrei samt aftur." Mubarak lét loks undan kröfu landa sinna í dag og sagði af sér embætti forseta á átjánda degi mótmæla. Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út í landinu en í dag höfðu mótmælendur umkringt allar helstu stjórnarbyggingar og höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins. Obama ávarpaði fréttamenn í Hvíta húsinu í kvöld. Hann sagði raddir allra verða fá að heyrast í uppbyggingarstarfinu og að egypski herinn verði að tryggja að breytingarnar verði trúverðugar. Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út Hundruð þúsund mótmælenda höfðu búist við afsögn Mubaraks úr forsetaembætti í sjónvarpsávarpi hans í gærkvöldi. Þegar Mubarak þráðist enn við og talaði um að Egyptar lytu ekki vilja útlendra afla og hann ætlaði að sitja fram í september, braust út mikil reiði meðal mótmælenda. Þeir boðuðu að tuttugu milljón manns myndu mótmæla að loknum bænastundum í dag á helgidegi múslíma. Og það stóð heima. Mikill fjöldi kom saman til bæna halds við Frelsistorgið í Kairó og víða annars staðar í höfuðborginni, sem og í öðrum borgum landsins. Þegar líða tók á daginn höfðu þúsundir manna umkringt forsetahöllina, aðrar stjórnarstofnanir í Kairó og höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins og víðs vegar um landið hafi fólk safnast saman við stjórnarbyggingar. Herráðið sendi frá sér yfrirlýsingu þar sem fólk var hvatt til að láta af mótmælum og halda til vinnu sinnar. Herinn myndi tryggja frjálsar kosningar í landinu. Þá bárust fréttir af því um miðjan dag forsetinn og fjölskylda hans hefðu yfirgefið borgina og farið í sumarhús forsetans í Sharm El Sheikh við Rauða hafið, en þaðan er stutt að fara til Saudi Arabíu, hafi Mubarak áhuga á því. Um klukkan fjögur að íslenskum tíma kom Omar Suleiman varaforseti fram og las stutta yfirlýsingu fyrir fjölmiðla um afsögn Mubaraks. Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út um allt Egyptaland eftir þessa yfirlýsingu. Hvað nú tekur við er óvíst. Eftir 30 ára stjórn flokks Mubaraks eru varla til aðrir skipulagðir stjórnmálaflokkar í landinu en stjórnarflokkurinn. Fólkið vill kosningar en í millitíðinni mun herinn fara með völdin en yfirmenn hans hafa lýst yfir að herinn virði rétt fólksins í landinu.
Tengdar fréttir Bretar vilja breytingar „Það er ekki okkar að ákveða hver leiðir Egyptaland heldur egypsku þjóðarinnar,“ segir William Hague, utanríkisráðherra Breta. Hann telur þó brýnt að Egyptar ráðist í umfangsmiklar breytingar. Þær þurfi að ná fram með friðsamlegum og lýðræðislegum hætti. Þetta kom fram í máli ráðherrans eftir að ljóst var að Hosni Mubarak mun sitja áfram sem forseti Egyptalands, en fjölmargir bjuggust við því að hann myndi segja af sér í kvöld. 11. febrúar 2011 00:02 Mubarak flúinn með fjölskylduna Óstaðfestar fréttir herma að Hosni Mubarak forseti Egyptalands og fjölskylda hans hafi yfirgefið höfuðborgina Kairó. Lars Lökke Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur lýsti því yfir í dag, fyrstur vestrænna leiðtoga, að forsetinn ætti að segja af sér nú þegar. 11. febrúar 2011 13:54 Hosni Mubarak situr sem fastast Hosni Mubarak Egyptalandsforseti ætlar að sitja á forsetastóli fram að forsetakosningunum í september. Þetta staðfesti hann í ávarpi til þjóðar sinnar í gærkvöldi. Gekk yfirlýsing hans þvert á staðhæfingar fjölmiðla um að hann ætlaði að stíga niður. 11. febrúar 2011 04:30 ElBaradei: Besti dagur lífs míns „Ekki trúði ég að ég myndi lifa þann dag þegar egypska þjóðinn myndi losna undan áratuga kúgun," sagði Mohamed ElBaradei, handhafi friðarverðlauna Nóbels, eftir að ljóst var að Hosni Mubarak hefði ákveðið að láta af embætti forseta Egyptalands. „Þetta er besti dagur lífs míns," sagði ElBaradei ennfremur. Hann er einn af leiðtogum mótmælenda sem undanfarna 18 daga hafa krafist afsagnar Mubaraks. ElBaradei er fyrrverandi yfirmaður Alþjóðakjarnorkueftirlitsins. 11. febrúar 2011 17:25 Mubarak hættir Hosni Mubarak hefur ákveðið að láta af embætti forseta Egyptalands, að því er fram kemur á CNN. Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út í Kaíró, höfuðborg Egyptalands, þegar hann tilkynnti ákvörðun sína. 11. febrúar 2011 16:09 Kaíró: Herinn styður valdaframsal Mubaraks Egypski herinn hefur gefið út yfirlýsingu þess efnis að hann styðji þá ákvörðun Mubaraks forseta að sitja áfram en framselja völd sín til Suleimans varaforseta. Búist er við milljónum mótmælenda í Kairó síðar í dag en allt er á suðupunkti í landinu eftir að Hosni Mubarak forseti tilkynnti í sjónvarpsræðu að hann ætlaði ekki að segja af sér fyrr en kosið verður í september. 11. febrúar 2011 10:29 Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Fleiri fréttir Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Saka borgina um að víkja sér undan ábyrgð Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Sjá meira
Bretar vilja breytingar „Það er ekki okkar að ákveða hver leiðir Egyptaland heldur egypsku þjóðarinnar,“ segir William Hague, utanríkisráðherra Breta. Hann telur þó brýnt að Egyptar ráðist í umfangsmiklar breytingar. Þær þurfi að ná fram með friðsamlegum og lýðræðislegum hætti. Þetta kom fram í máli ráðherrans eftir að ljóst var að Hosni Mubarak mun sitja áfram sem forseti Egyptalands, en fjölmargir bjuggust við því að hann myndi segja af sér í kvöld. 11. febrúar 2011 00:02
Mubarak flúinn með fjölskylduna Óstaðfestar fréttir herma að Hosni Mubarak forseti Egyptalands og fjölskylda hans hafi yfirgefið höfuðborgina Kairó. Lars Lökke Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur lýsti því yfir í dag, fyrstur vestrænna leiðtoga, að forsetinn ætti að segja af sér nú þegar. 11. febrúar 2011 13:54
Hosni Mubarak situr sem fastast Hosni Mubarak Egyptalandsforseti ætlar að sitja á forsetastóli fram að forsetakosningunum í september. Þetta staðfesti hann í ávarpi til þjóðar sinnar í gærkvöldi. Gekk yfirlýsing hans þvert á staðhæfingar fjölmiðla um að hann ætlaði að stíga niður. 11. febrúar 2011 04:30
ElBaradei: Besti dagur lífs míns „Ekki trúði ég að ég myndi lifa þann dag þegar egypska þjóðinn myndi losna undan áratuga kúgun," sagði Mohamed ElBaradei, handhafi friðarverðlauna Nóbels, eftir að ljóst var að Hosni Mubarak hefði ákveðið að láta af embætti forseta Egyptalands. „Þetta er besti dagur lífs míns," sagði ElBaradei ennfremur. Hann er einn af leiðtogum mótmælenda sem undanfarna 18 daga hafa krafist afsagnar Mubaraks. ElBaradei er fyrrverandi yfirmaður Alþjóðakjarnorkueftirlitsins. 11. febrúar 2011 17:25
Mubarak hættir Hosni Mubarak hefur ákveðið að láta af embætti forseta Egyptalands, að því er fram kemur á CNN. Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út í Kaíró, höfuðborg Egyptalands, þegar hann tilkynnti ákvörðun sína. 11. febrúar 2011 16:09
Kaíró: Herinn styður valdaframsal Mubaraks Egypski herinn hefur gefið út yfirlýsingu þess efnis að hann styðji þá ákvörðun Mubaraks forseta að sitja áfram en framselja völd sín til Suleimans varaforseta. Búist er við milljónum mótmælenda í Kairó síðar í dag en allt er á suðupunkti í landinu eftir að Hosni Mubarak forseti tilkynnti í sjónvarpsræðu að hann ætlaði ekki að segja af sér fyrr en kosið verður í september. 11. febrúar 2011 10:29