35 þúsund lögreglumenn í viðbragðsstöðu í Alsír Jónas Margeir skrifar 12. febrúar 2011 18:43
Þúsundir mótmæla í Algeirsborg, höfuðborg Alsírs og meira en þrjátíu og fimm þúsund lögreglumenn eru sagðir í viðbragðsstöðu. Mótmælendur söfnuðust saman á fyrsta maí torginu í Algeirsborg og veiga fjölmargir forsíðum dagblaða sem greina frá afsögn Hosni Mubaraks, fyrrverandi forseta Egyptalands. Stjórnvöld í Alsír hafa lokað öllum aðgangsleiðum að Algeirsborg og hundruð manna hafa verið handteknir. Átök brutust út á milli lögreglu og mótmælenda en mótmælendur krefjast þess að Abdelaziz Bouteflika, forseti Alsírs segir af sér. Hann hefur verið við völd frá árinu 1999. Mótmæli voru bönnuð í Alsír árið 1992 en mótmælendur gefa nú lítið fyrir bannið og fyrirmæli stjórnvalda. Í von um að friðþægja mótmælendur afléttu stjórnvöld þó banninu en segja það þó enn gilda í Algeirsborg. Byltingarandinn sem hófst í Túnis sem barst svo til Egyptalands er nú kominn til Alsírs en margir Mótmælendur hafa einnig komið saman í Jemen til að krefjast lýðræðisumbóta. Þá er afsögn Hosni Mubaraks sögð hafa verið mikil hvatning fyrir alsírksku þjóðina. Margir óttast þó að til átaka komi á milli lögreglu og mótmælenda en erlendir fjölmiðlar hafa greint frá mörgum óstaðfestum dauðsföllum. Á tíunda áratugnum létu um tvö hundruð þúsund manns lífið í uppreisn í Alsír.
Mest lesið Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Innlent Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Innlent Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Innlent Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Innlent Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Innlent Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Innlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúra barma Erlent Fleiri fréttir Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúra barma Fimm hermenn skotnir á herstöð Tvöfaldar tolla á Indland vegna kaupa á rússneskri olíu Stefnir í kjördæmastríð í Bandaríkjunum? Nýr forseti Póllands vill draga úr áhrifum ESB Stendur í vegi rannsóknar á milljarða svikamyllu Birtist óvænt á þaki Hvíta hússins Yfir 400.000 tilkynningar um kynferðisofbeldi Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Minntust fórnarlambanna í Hírósíma Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Sjá meira