Bora niður að vatni sem hefur verið einangrað í fimmtán milljónir ára 28. janúar 2011 08:19 Vostok stöðin.
Rússneskir vísindamenn eiga aðeins eftir að bora 50 metra niður í tæplega fjögurra kílómetra ísbreiðu á kaldasta stað veraldar á Suðurskautinu. Undir því er riastórt stöðuvatn sem hefur verið einangrað í fimmtán milljónir ára. Vísindamennirnir hafa reynt að bora niður að vatninu undir Vostok rannsóknarstöðinni í þrettán ár án árangurs. Vatnið er á tæplega fjögurra kílómetra dýpi og ísinn verður gríðarlega illviðráðanlegur á þriggja kílómetra dýpi. Þar fyrir utan eru aðstæður þær öfgakenndustu sem finna má á jörðinni. Kuldamet var sett á Vostok-stöðinni árið 1983. Þá mældist kuldinn 89 gráður í mínus. Vatnið er um 800 metra djúpt og tíu þúsund ferkílómetrar að stærð. Vísindamennirnr keppa við tímann því þeir verða að yfirgefa stöðina þar næstu helgi vegna veðurs. En borunin gengur hægt, þeir ná aðeins að bora 1,6 metra á dag. En það er eftir miklu að slægjast því talið er öruggt að líf megi finna í vatninu enda einangrað í fimmtán milljónir ára. Þá er borunin ekki hættulaus, óttast er að fornir sýklar leynist í vatninu og leysist úr læðingi við borunina með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Rússnesku vísindamennirnir telja litlar líkur á því, ólíkt mörgum starfsbræðrum sínum, og því hættunnar virði að bora niður að vatninu að þeirra mati. Unnið er allan sólarhringinn til þess að komast að vatninu.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Innlent Fleiri fréttir Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Saka borgina um að víkja sér undan ábyrgð Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Sjá meira