Undirbúa snjóframleiðslu í Ártúnsbrekku 19. desember 2011 11:30 Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins stefna að því að framleiða snjó í Ártúnsbrekku. Um tilraunaverkefni er að ræða, en reynist tækjabúnaðurinn vel er hugsanlegt að lagt verði í kaup á snjóbyssu. Fréttablaðið/Vilhelm
Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins stefna að því að koma upp snjóbyssu við skíðasvæðið í Ártúnsbrekku. Að sögn Magnúsar Árnasonar, framkvæmdastjóra skíðasvæðanna, er um tilraunaverkefni að ræða, en tilgangurinn er meðal annars að geta boðið upp á fleiri skíðadaga á vetri og sýna fram á kosti snjóframleiðslu. „Hugmyndin er þannig til komin að síðustu tvo vetur snjóaði lítið þrátt fyrir mikinn kulda, en það voru kjöraðstæður til snjóframleiðslu,“ segir Magnús í samtali við Fréttablaðið. „Veturinn 2009 til 2010 og í janúar í ár hefði til dæmis verið hægt að framleiða snjó á fullu.“ Magnús bætir því við að ef allt gangi upp sé stefnan að framleiða snjó í Ártúnsbrekku þegar aðstæður eru fyrir hendi og þá sérstaklega ef lokað er uppi í Bláfjöllum. Svæðið muni bæði nýtast almenningi og skíðadeildum. „Þannig að við erum að vonast til þess að fá tækifæri til að sýna borgarbúum hversu auðvelt þetta er og hversu vel framleiddur snjór getur haldist. Að vera með eina hvíta brekku í annars snjólausri borg ætti að vekja gott umtal um snjóframleiðslu.“ Ástæða þess að Ártúnsbrekka verður fyrir valinu fyrir þetta tilraunaverkefni er aðgangur að vatni. Í Bláfjöllum er takmarkað magn af neysluvatni sem myndi klárast afar fljótt ef það yrði tengt við snjóbyssuna. Umhverfis- og samgönguráð Reykjavíkurborgar fjallaði um málið á síðasta fundi sínum og fagnaði þar tillögum um að nýta skíðasvæðið í Ártúnsbrekku betur, en lagði ríka áherslu á að vatnstaka úr ánni muni ekki hafa náttúruspjöll í för með sér. Samkvæmt greinargerð Magnúsar verður vatnið tekið úr hyl í Elliðaám þar sem enginn lax er. Frá dælunni verður lögð 300 metra lögn ofanjarðar upp í brekkuna. Dælan flytur 8,3 lítra vatns á sekúndu. Veiðimálastofnun hefur þegar gefið jákvæða umsögn um verkefnið þar sem segir að verði öllum reglum framfylgt, muni það ekki hafa áhrif á lífríki ánna. Engin íblöndunarefni eru notuð í framleiðsluna, en snjór sem er búinn til með þessum hætti er lengur að bráðna en náttúrulegur snjór. Það er vegna þess að snjókorn frjósa út á við, en tilbúinn snjór frýs inn á við. Snjóbyssan er fengin að láni, án endurgjalds, frá framleiðanda en Magnús segir að ef þessi tilraun heppnist vel á næstu misserum, sé hugsanlegt að lagt verði í kaup á snjóbyssu. Slíkt tæki kostar hins vegar á milli 30 og 40 þúsund evrur, fyrir utan virðisaukaskatt og aðflutningsgjöld. Málið liggur nú hjá ÍTR sem ákveður hvort lagt verður út í verkefnið. thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Innlent Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps Fréttir Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Innlent Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Innlent „Ekkert sérstaklega ánægð“ þegar hún sá hnífinn Innlent Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Erlent Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Innlent Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Innlent Fleiri fréttir Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Varamaður á Ísafirði verður sveitarstjóri Súðavíkur Orðinn Háskóli Íslands á Hólum Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar „Ekkert sérstaklega ánægð“ þegar hún sá hnífinn Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum „Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Gagnrýnir Landhelgisgæsluna vegna Bandero og ýtukarl á áttræðisaldri „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Fósturfaðirinn áfram í gæslu Leiðrétta rangar kröfur um kílómetragjald af seldum bílum „Hlægilegt þvaður gegn lýðræði!“ Handtekinn í Reykholti vegna kannabisræktunar Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Fær ekki áheyrn í Hæstarétti eftir að hann kallaði konu „svertingjatussu“ Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Rigningu spáð í Reykjavík alla vikuna og fólk á leið austur „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Erfiðar aðstæður þegar göngumaður slasaðist á leið í Hrafntinnusker Reglugerðin rétt ókomin: „Auðvitað er þetta áfellisdómur yfir réttarframkvæmd á Íslandi“ Þór með Bandero í gæslu á hvalamiðum „Held að foreldrar hafi bara tekið þetta til sín“ „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Fresta framkvæmdum á brúnni vegna vætutíðar Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Sjá meira