Olíuverð hækkar vegna átakanna í Egyptalandi 30. janúar 2011 12:15 Frá höfuðborginni Kaíró í morgun. Mynd/AP
Tala látinna í Egyptalandi er komin á annað hundrað. Olíuverð hefur rokið upp og óttast er að Súez-skurðurinn muni lokast. Stjórnvöld eru farin að beita meiri hörku í átökunum og voru sautján skotnir þegar þeir reyndu að ráðast á tvær lögreglustöðvar í borginni Beni Suef sunnan Kairó. Unnið er að því að flytja erlenda ríkisborgara í burtu frá landinu og hafa mörg ríki sent flugvélar til að ferja fólk í burtu. Barack Obama, Bandaríkjaforseti, sagði í gærkvöld að ekki væri nóg að stokka upp í stjórnkerfinu og skoraði á Hosni Mubarak, forseta Egyptalands, að uppfylla loforð sín um róttækar umbætur í landinu. Undir þetta taka leiðtogar Bretlands, Frakklands og Þýskalands, en þeir hvetja Mubarak til að halda aftur af öryggissveitum sínum og forðast blóðbað. Átökin eru nú þegar farin að hafa víðtæk áhrif um allan heim. Olíuverð hækkaði um rúm 4% á mörkuðum fyrir helgi vegna ótta um að átökin breiðist út á svæðinu og hafi áhrif á olíuframboð í heiminum. Þá er óttast að Súez-skurðurinn, lífæð flutninga á hrávörum frá miðausturlöndum muni lokast, en vopnaðar sveitir gæta hans nú. Talið er að ef átökin halda áfram að olíuverð geti risið í yfir 100 dollara tunnan en hún er í um 89 dollurum nú. Mynd/AP .
Tengdar fréttir Aukin harka í mótmælunum í Egyptalandi Að minnsta kosti fjórir eru látnir í mótmælunum í Egyptalandi síðastliðna tvo daga. Stjórnvöld óttast áframhaldandi mótmælahrinu. Átök mótmælanda við lögreglu hafa verið afar ofbeldisfull. 27. janúar 2011 08:21 Mubarak komi til móts við kröfur almennings David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, hefur verulegar áhyggjur af ástandinu í Egyptalandi, en tugir eru látnir eftir mótmæli síðustu daga. Cameron ræddi við Hosni Mubarak, forseta Egyptalands, í dag. Hann segist hafa lagt áherslu á egypsk stjórnvöld komi til móts við kröfur almennings um lýðræðisumbætur. Cameron hvatti forsetann jafnframt til hafna ofbeldi og virða rétt Egypta til að tjá skoðanir sínar. 29. janúar 2011 20:52 Hörð átök í Kaíró - táragasi beitt Þúsundir mótmæla í Kairó í Egyptalandi í einhverjum fjölmennustu mótmælum sem fram hafa farið í Mið-Austurlöndum. Hörð átök brutust út í dag þegar mótmælendum og lögreglu lenti saman. Lögreglan hefur meðal annars beitt táragasi á mótmælendur, sem eru andvígir stjórn Hosni Mubaraks, sem hefur stjórnað Egyptalandi í 30 ár. 25. janúar 2011 16:02 Hreyfingin skorar á ríkisstjórnina Hreyfing skorar á Jóhönnu Sigurðardóttur og ríkisstjórnina að krefjast þess að stjórnvöld í Egyptalandi hlusti á kröfur almennings auk þess að fordæma harðlega ritskoðun, glæpsamlegt harðræði og frelsisskreðingu Hosni Mubaraks. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. 28. janúar 2011 21:32 Þúsundir mótmæltu Mubarak Þúsundir manna söfnuðust saman á götum Kairó, höfuðborgar Egyptalands í dag, og kröfðust afsagnar Hosni Mubaraks, forseta landsins. 25. janúar 2011 14:33 Þrír látnir og þúsundir slasaðir eftir mótmæli í Kairó Að minnsta kosti þrír létust í ofbeldisfullum mótmælum í Kairó í Egyptalandi í gær en lögreglan batt í nótt enda á óeirðirnar. Skipuleggjendur mótmælanna segja óeirðirnar í gær marka upphafið af endinum á valdatíð núverandi stjónrvalda. 26. janúar 2011 08:38 Útgöngubann sett á Egyptalandi Útgöngubann hefur verið sett í egypsku borgunum Kaíró, Alexandríu og Súez en tugir þúsunda mótmælenda hafa verið á götum landsins undanfarna daga til þess að mótmæla stjórn Mubaraks forseta. 28. janúar 2011 16:55 Mubarak kynnir nýja ríkisstjórn Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, skipar nýja ríkisstjórn í dag. Hann hyggst þó sjálfur sitja sem fastast. Þúsundir Egypta taka nú þátt í mótmælum víðsvegar um landið þrátt fyrir útgöngubann. Víða loga eldar og þá hafa skothvellir heyrst í höfuðborginni, Kairó. 29. janúar 2011 10:42 Byltingin í Egyptalandi veldur uppnámi í Bandaríkjunum - fréttaskýring Mótmælin í Egyptalandi og krafan um að Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, segi af sér eftir þrjátíu ára valdasetu, setja áætlanir bandarískra yfirvalda í Mið-Austurlöndum í uppnám. 28. janúar 2011 10:58 Sonur Mubaraks flýr land Sonur Hosni Mubaraks, forseta Egyptalands, flúði land í gær samkvæmt arabískum fjölmiðlum eftir að óeirðir brutust út í Kairó með þeim afleiðingum að þrír létust og þúsundir slösuðust. 26. janúar 2011 09:08 Eldar loga í Kaíró Þrátt fyrir útgöngubann í stærstu borgum Egyptalands mótmæla þúsundir manna á götum úti. Í höfuðborginni, Kaíró, loga eldar víðar. Kveikt hefur verið í byggingum, bílum og hjólbörðum. Mótmælendur krefjast afsagnar Hosni Mubaraks, forseta landsins, en hann hefur verið einráður í Egyptalandi í yfir 30 ár. 29. janúar 2011 09:09 Fyrrverandi ráðherra falið að mynda nýja stjórn Byltingarástand er í Egyptalandi og tugir hafa látið lífið í átökunum. Ahmed Shafiq, fyrrverandi flugmálaráðherra, hefur verið falið að mynda nýja ríkisstjórn, en forseti landsins rak ríkisstjórnina í gær. Þá hefur ffirmaður leyniþjónustunnar, Omar Suleiman, verið skipaður varaforseti og er það í fyrsta skipti í 30 ár sem Mubarak skipar varaforseta. 29. janúar 2011 18:58 Slökkt á netinu til þess að lægja öldur í Egyptalandi Internetið hefur legið niðri í Egyptalandi í dag auk þess sem samskipti með farsímum hafa gengið treglega. Ástæðan er ótti egypskra yfirvalda um gríðarlega fjölmenn mótmæli út um allt landið í dag. 28. janúar 2011 08:15 Herinn hótar ofbeldi Egypski herinn varar mótmælendur við að vera á ferli í stærstu borgum landsins í dag og þeir sem brjóti útigöngubannið sem sett var á í gær séu í hættu. Undanfarna fimm daga hafa tugþúsundir mótmælt í helstu borgum Egyptalands, en mótmælendur krefjast þess að Hosni Mubarak láti án tafar af völdum sem forseti landsins. Forsetinn rak ríkisstjórn sína í gærkvöldi en hefur sjálfur ekki í hyggju að láta af embætti. 29. janúar 2011 14:54 Þjóðarleiðtogar þrýsta á Mubarak Tala látinna í Egyptalandi er komin á annað hundrað síðan að mótmælin hófust á þriðjudaginn samkvæmt Reuters fréttaveitunni. Þúsundir eru særðir. Stjórnvöld halda nú, sjötta daginn í röð, áfram að berjast við mótmælendur, 17 voru skotnir af lögreglu þegar þeir reyndu að ráðast á tvær lögreglustöðvar í borginni Beni Suef sunnan Kairó. 30. janúar 2011 09:43 Mubarak virði rétt Egypta til að mótmæla Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hvetur stjórnvöld í Egyptalandi til að hafna ofbeldi og virða rétt almennings til að mótmæla og tjá skoðanir sínar, þetta kom fram í sjónvarpsávarpi hans í gærkvöld. Hann lagði áherslu á að Egyptar héldu grundvallar mannréttindum sem Bandaríkin myndu berjast fyrir hvar sem er í heiminum. Með þessu vildi Obama hvetja stjórnvöld til að opna fyrir internet, samskiptasíður og símalínur sem lokað var eftir að átökin brutust út. 29. janúar 2011 09:54 Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Innlent Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Erlent Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Erlent Fleiri fréttir Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Sjá meira
Aukin harka í mótmælunum í Egyptalandi Að minnsta kosti fjórir eru látnir í mótmælunum í Egyptalandi síðastliðna tvo daga. Stjórnvöld óttast áframhaldandi mótmælahrinu. Átök mótmælanda við lögreglu hafa verið afar ofbeldisfull. 27. janúar 2011 08:21
Mubarak komi til móts við kröfur almennings David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, hefur verulegar áhyggjur af ástandinu í Egyptalandi, en tugir eru látnir eftir mótmæli síðustu daga. Cameron ræddi við Hosni Mubarak, forseta Egyptalands, í dag. Hann segist hafa lagt áherslu á egypsk stjórnvöld komi til móts við kröfur almennings um lýðræðisumbætur. Cameron hvatti forsetann jafnframt til hafna ofbeldi og virða rétt Egypta til að tjá skoðanir sínar. 29. janúar 2011 20:52
Hörð átök í Kaíró - táragasi beitt Þúsundir mótmæla í Kairó í Egyptalandi í einhverjum fjölmennustu mótmælum sem fram hafa farið í Mið-Austurlöndum. Hörð átök brutust út í dag þegar mótmælendum og lögreglu lenti saman. Lögreglan hefur meðal annars beitt táragasi á mótmælendur, sem eru andvígir stjórn Hosni Mubaraks, sem hefur stjórnað Egyptalandi í 30 ár. 25. janúar 2011 16:02
Hreyfingin skorar á ríkisstjórnina Hreyfing skorar á Jóhönnu Sigurðardóttur og ríkisstjórnina að krefjast þess að stjórnvöld í Egyptalandi hlusti á kröfur almennings auk þess að fordæma harðlega ritskoðun, glæpsamlegt harðræði og frelsisskreðingu Hosni Mubaraks. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. 28. janúar 2011 21:32
Þúsundir mótmæltu Mubarak Þúsundir manna söfnuðust saman á götum Kairó, höfuðborgar Egyptalands í dag, og kröfðust afsagnar Hosni Mubaraks, forseta landsins. 25. janúar 2011 14:33
Þrír látnir og þúsundir slasaðir eftir mótmæli í Kairó Að minnsta kosti þrír létust í ofbeldisfullum mótmælum í Kairó í Egyptalandi í gær en lögreglan batt í nótt enda á óeirðirnar. Skipuleggjendur mótmælanna segja óeirðirnar í gær marka upphafið af endinum á valdatíð núverandi stjónrvalda. 26. janúar 2011 08:38
Útgöngubann sett á Egyptalandi Útgöngubann hefur verið sett í egypsku borgunum Kaíró, Alexandríu og Súez en tugir þúsunda mótmælenda hafa verið á götum landsins undanfarna daga til þess að mótmæla stjórn Mubaraks forseta. 28. janúar 2011 16:55
Mubarak kynnir nýja ríkisstjórn Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, skipar nýja ríkisstjórn í dag. Hann hyggst þó sjálfur sitja sem fastast. Þúsundir Egypta taka nú þátt í mótmælum víðsvegar um landið þrátt fyrir útgöngubann. Víða loga eldar og þá hafa skothvellir heyrst í höfuðborginni, Kairó. 29. janúar 2011 10:42
Byltingin í Egyptalandi veldur uppnámi í Bandaríkjunum - fréttaskýring Mótmælin í Egyptalandi og krafan um að Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, segi af sér eftir þrjátíu ára valdasetu, setja áætlanir bandarískra yfirvalda í Mið-Austurlöndum í uppnám. 28. janúar 2011 10:58
Sonur Mubaraks flýr land Sonur Hosni Mubaraks, forseta Egyptalands, flúði land í gær samkvæmt arabískum fjölmiðlum eftir að óeirðir brutust út í Kairó með þeim afleiðingum að þrír létust og þúsundir slösuðust. 26. janúar 2011 09:08
Eldar loga í Kaíró Þrátt fyrir útgöngubann í stærstu borgum Egyptalands mótmæla þúsundir manna á götum úti. Í höfuðborginni, Kaíró, loga eldar víðar. Kveikt hefur verið í byggingum, bílum og hjólbörðum. Mótmælendur krefjast afsagnar Hosni Mubaraks, forseta landsins, en hann hefur verið einráður í Egyptalandi í yfir 30 ár. 29. janúar 2011 09:09
Fyrrverandi ráðherra falið að mynda nýja stjórn Byltingarástand er í Egyptalandi og tugir hafa látið lífið í átökunum. Ahmed Shafiq, fyrrverandi flugmálaráðherra, hefur verið falið að mynda nýja ríkisstjórn, en forseti landsins rak ríkisstjórnina í gær. Þá hefur ffirmaður leyniþjónustunnar, Omar Suleiman, verið skipaður varaforseti og er það í fyrsta skipti í 30 ár sem Mubarak skipar varaforseta. 29. janúar 2011 18:58
Slökkt á netinu til þess að lægja öldur í Egyptalandi Internetið hefur legið niðri í Egyptalandi í dag auk þess sem samskipti með farsímum hafa gengið treglega. Ástæðan er ótti egypskra yfirvalda um gríðarlega fjölmenn mótmæli út um allt landið í dag. 28. janúar 2011 08:15
Herinn hótar ofbeldi Egypski herinn varar mótmælendur við að vera á ferli í stærstu borgum landsins í dag og þeir sem brjóti útigöngubannið sem sett var á í gær séu í hættu. Undanfarna fimm daga hafa tugþúsundir mótmælt í helstu borgum Egyptalands, en mótmælendur krefjast þess að Hosni Mubarak láti án tafar af völdum sem forseti landsins. Forsetinn rak ríkisstjórn sína í gærkvöldi en hefur sjálfur ekki í hyggju að láta af embætti. 29. janúar 2011 14:54
Þjóðarleiðtogar þrýsta á Mubarak Tala látinna í Egyptalandi er komin á annað hundrað síðan að mótmælin hófust á þriðjudaginn samkvæmt Reuters fréttaveitunni. Þúsundir eru særðir. Stjórnvöld halda nú, sjötta daginn í röð, áfram að berjast við mótmælendur, 17 voru skotnir af lögreglu þegar þeir reyndu að ráðast á tvær lögreglustöðvar í borginni Beni Suef sunnan Kairó. 30. janúar 2011 09:43
Mubarak virði rétt Egypta til að mótmæla Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hvetur stjórnvöld í Egyptalandi til að hafna ofbeldi og virða rétt almennings til að mótmæla og tjá skoðanir sínar, þetta kom fram í sjónvarpsávarpi hans í gærkvöld. Hann lagði áherslu á að Egyptar héldu grundvallar mannréttindum sem Bandaríkin myndu berjast fyrir hvar sem er í heiminum. Með þessu vildi Obama hvetja stjórnvöld til að opna fyrir internet, samskiptasíður og símalínur sem lokað var eftir að átökin brutust út. 29. janúar 2011 09:54