Er Glazer fjölskyldan með risatilboð í Man Utd frá Katar? Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 11. febrúar 2011 10:02 Ungir stuðningsmenn Manchester United með mótmælaspjald sem segir alla söguna. Nordic Photos/Getty Images
Bandaríska Glazer fjölskyldan sem á enska úrvalsdeildarliðið Manchester United er að fara yfir ótrúlegt kauptilboð frá eignarhaldsfélagi sem staðsett er í Katar. Enska dagblaðið Daily Express greinir frá. Samkvæmt frétt blaðsins eru Malcolm Glazer og synir hans að fara yfir smáatriði í kauptilboðinu sem hljóðar upp á 300 milljarða kr. eða 1.600 milljónir punda. Bandarísku fjárfestarnir keyptu Man Utd árið 2005 fyrir 790 milljónir punda eða 148 milljarða kr. Stór hluti stuðningsmanna Man Utd hefur ekki leynt andúð sinn á bandarísku eigendunum og hafa ýmis mótmæli verið haldin á undanförnum misserum. Ef af þessu verður er komin upp sú staða að Manchester United og Manchester City væru bæði í eigu aðila frá Mið-Austurlöndum. Man City er í eigu fjárfestafélags frá Abu Dhabi er Mansour bin Zayed Al Nahyan aðaleigandi. Katar verður gestgjafi heimsmeistaramótsins árið 2022 og er greinilegt að sú ákvörðun hefur kveikt fótboltaáhugann hjá fjársterkum aðilum þar á bæ. Fjárfestar frá Katar hafa verið áberandi á Englandi undanfarin misseri og hafa þeir m.a. keypt Harrods verslanakeðjuna af Mohamed Al Fayed sem er eigandi Fulham. Katar kemur einnig við sögu hjá Barcelona en nýverið gerði spænska félagið auglýsingasamning við fyrirtæki frá Katar og er það í fyrsta sinn sem Barcelona fær greitt fyrir að vera með auglýsingu á keppnisbúningum sínum. Manchesterliðin mætast í grannaslag í hádeginu á morgun á Old Trafford þar sem Man Utd tekur á móti grannaliðinu í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar. Leikurinn hefst 12.45 og er hann í beinni útsendingu á Stöð 2 sport 2. Leikir helgarinnar í enska boltanum á Stöð 2 sport 2.
Mest lesið Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti FH - KR 1-1 | Færanýtingin fór með gestina Íslenski boltinn Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Íslenski boltinn Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fleiri fréttir Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Sjá meira