Viskíflaskan komin í 175 þúsund - uppboðið klárast í kvöld 30. nóvember 2011 13:11
Hæsta boð í viskíflöskuna fornu, sem fannst í Nauthólsvíkinni fyrir margt löngu, er komið í 175.000 krónur. Tilboðsfrestur rennur út í kvöld en andvirði flöskunnar mun óskipt renna til Guðmundar Felix Grétarssonar, fyrrverandi starfsmanns Rafmagnsveitunnar, sem eins og kunnugt er safnar nú fyrir kostnaðarsamri handaágræðsluaðgerð í Frakklandi. Í tilkynningu frá Orkuveitunni kemur fram að það hafi verið starfsmenn fyrirtækisins sem hófu uppboð á flöskunni 16. nóvember síðastliðinn og hefur besta boð hækkað jafnt og þétt síðan. „Lágmarsboð var 20.000 krónur en nú stendur hæsta boð í 175.000 krónum.“ Hægt er að bjóða í flöskuna til klukkan 23:30 í kvöld með tölvupósti á netfangið starfsmannafelag@or.is. Hæsta tilboði verður tekið og flaskan afhent gegn staðgreiðslu. „Þegar starfsmenn Vatnsveitu Reykjavíkur grófu niður á bilaða lögn í Hlíðarfæti við Nauthólsvík, í maí 1994, kom þessi óátekna viskíflaska í leitirnar. Hún var á um eins metra dýpi í jarðveginum. Samkvæmt upplýsingum umboðsmanna Ballantines Whiskey á Íslandi, G. Helgason og Melsted h.f., er flaskan að öllum líkindum frá stríðsárunum. Breski herinn hafði einmitt aðsetur á þessu svæði þar sem flaskan fannst. Hér er því um gamalt viskí að ræða. Starfsmenn Vatnsveitunnar náðu oft góðum árangri við leit að lekum og segja má að lekinn hafi verið margvíslegur,“ segir ennfremur.Starfsmenn OR gáfu Guðmundi 681.908 krónur Fyrr í mánuðinum gekkst starfsmannafélag Orkuveitunnar fyrir fjársöfnun til styrktar Guðmundi Felix. Starfsfólk gaf 681.908 krónur. OR gaf sömu fjárhæð á móti og fékk Guðmundur því afhenta ávísun að fjárhæð 1.363.816 um miðjan mánuðinn.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira