Aston Villa og Sunderland stórgræddu á lokadeginum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. maí 2011 06:00 Boudewijn Zenden skoraði eitt og lagði upp annað í 3-0 sigri Sunderland á West Ham um helgina. Sigurinn reyndist dýrmætur en þetta var síðasti leikur Zendens með Sunderland. Nordic Photos / Getty Images
Gjaldkerar Aston Villa og Sunderland hafa væntanlega brosað allan hringinn þegar þeir sáu lokastöðuna í ensku úrvalsdeildinni eftir lokaumferðina á sunnudaginn. Bæði lið unnu sína leiki og hoppuðu fyrir vikið upp um fjögur sæti. Það skiptir heilmiklu máli þegar kemur að úthlutun vinningsfjár í deildinni. Aston Villa og Sunderland fá bæði 576 milljónum króna meira í sinn hlut ef mið er tekið af stöðu liðanna fyrir lokaumferðina. Aston Villa endaði í níunda sæti og Sunderland því tíunda og munar heilmiklu um það eins og sjá má í meðfylgjandi töflu. En að sama skapi þurftu tvö lið að gjalda fyrir þetta. Stoke og Bolton töpuðu bæði í lokaumferðinni og féllu um fjögur sæti í stigatöflunni. Þau urðu því af áðurnefndum upphæðum. Stoke tapaði einmitt fyrir Wigan sem bjargaði þar með sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni og hoppaði upp um þrjú sæti. Þar með græddi liðið 429 milljónir sem er auðvitað smámunir miðað við það sem félagið fær fyrir það eitt að halda sæti sínu í deild þeirra bestu. Sjónvarpstekjum er nefnilega skipt jafnt á milli liðanna sem leika í deildinni og í ár fær hvert lið sex milljarða króna í sinn hlut. Þetta er þó aðeins grunnupphæðin. Þau lið sem eiga flesta leiki í beinni sjónvarpsútsendingu fá meira og fá því stærstu liðin meira í sinn hlut en þau minni þegar upp er staðið. Sætaskipti í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar1. Manchester United - (óbreytt) - 2.860 milljónir króna 2. Chelsea - (óbreytt) - 2.717 3. Manchester City - (óbreytt) - 2.574 4. Arsenal - (óbreytt) - 2.431 5. Tottenham - (óbreytt) - 2.288 6. Liverpool - (óbreytt) - 2.145 7. Everton - (óbreytt) - 2.002 8. Fulham - (óbreytt) -1.859 9. Aston Villa - (upp um 4 sæti, +572 miljónir kr) - 1.716 10. Sunderland - (upp um 4 sæti, +572 miljónir kr.) -1.573 11. West Bromwich Albion - (óbreytt) - 1.430 12. Newcastle - (óbreytt) - 1.287 13. Stoke City - (niður um 4 sæti, -572 miljónir kr.) - 1.144 14. Bolton - (niður um 4 sæti, -572 miljónir kr.) - 1.001 15. Blackburn - (óbreytt) - 858 16. Wigan- (upp um 3 sæti, +429 miljónir kr.) - 715 17. Wolverhampton Wolves - (niður um 1 sæti, -143 milljónir kr.) - 572 18. Birmingham - (niður um 1 sæti, -143 milljónir kr.) - 429 19. Blackpool - (niður um 1 sæti, -143 milljónir kr.) - 286 20. West Ham - (óbreytt) - 143
Mest lesið Eitt frægasta íþróttapar Bandaríkjanna tilkynnir um sambandsslit Fótbolti „Algjört kjaftæði og menn verða að fara taka sig aðeins saman í andlitinu“ Sport Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Körfubolti Þurftu að stækka þýska meistaraskjöldinn Fótbolti „Verðum að laga þetta ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist Stjörnunni gulls ígildi Íslenski boltinn Kjósa um hvort næsta tímabili Sveindísar verði snúið við Fótbolti „Andri Rúnar færir liðinu mjög mikið“ Fótbolti KR - Þór Ak. 5-2 | Veisla í Vesturbæ Íslenski boltinn „Hefðum átt skilið stig úr þessum leik“ Fótbolti Fleiri fréttir Lampard kom Coventry upp í úrvalsdeildina eftir 25 ára bið Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Sjá meira