Erlent

Yfir hundrað manns fórust í illvígum skýstrók

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.
Bæjaryfirvöld í bandaríska bænum Joplin í Missouri hafa staðfest að það hafi að minnsta kosti 116 manns farist vegna skýstróks sem fór í gegnum bæinn í gær.

Þá hafa á annað þúsund manns leitað sér aðhlynningar vegna stróksins. Um 50 þúsund manns búa í bænum en strókurinn eyðilagði um 2000 byggingar með ógurlegum eyðingarkrafti sínum sem markar tíu kílómetra slóð.

Í síðasta mánuði létust um 350 manns vegna skýstróka í mið- og suðurríkjum Bandaríkjanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×