Katrín afar bjartsýn á olíuleitina Kristján Már Unnarsson skrifar 28. nóvember 2011 19:03
Iðnaðarráðherra segir að þung áhersla verði lögð á að þjónustumiðstöð vegna olíuleitar á Drekasvæði verði á Íslandi fremur en Jan Mayen og lýsir mikilli bjartsýni um yfirstandandi útboð. Olíustofnun Noregs skýrði í síðustu viku frá afar jákvæðum niðurstöðum úr rannsóknum á Jan Mayen hryggnum í sumar sem gefi góðar vonir um olíu. Norðmenn undirbúa sjálfir olíuleit á svæðinu og hafa opnað á þann möguleika að þjónustumiðstöð fyrir olíuleitina verði á Jan Mayen. Í svari við fyrirspurn Sigmundar Ernis Rúnarssonar á Alþingi í dag benti Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra á að þjónustumiðstöð hefði verið undirbúin á Norðausturlandi sem og lóðir undir vinnslustöðvar olíu og gass í Gunnólfsvík. Hún sagði að mikil áhersla væri lögð á að þjónustumiðstöðin yrði á Norðausturlandi. Það væri mun betri kostur en Jan Mayen því horfa yrði til þess hversu mikið ósnortið land þar væri auk þess sem hún teldi að allar aðstæður væru betri á Íslandi. ,,Mælingarnar í sumar segja mér að ég ætla leyfa mér að verða bjartsýn á að það verði mjög jákvæðar niðurstöður úr þessu útboði sem nú stendur yfir af okkar hálfu og niðurstaðan verður í apríl," sagði Katrín. ,,Auðvitað er aldrei hægt að lofa neinu en ég ætla að leyfa mér allavegana að segja að þetta gefi því ansi sterkan byr í seglin, þessar niðurstöður sumarsins."
Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Fleiri fréttir „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Sjá meira