Fréttir vikunnar: Kjaftfor söngvari og hugsanlegt Kötlugos Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. júlí 2011 20:06 Það voru ýmsir hugsi yfir ummælum Jónsa. Mynd/ Rósa.
Fréttir vikunnar einkenndust mjög af náttúruhamförunum á Suðurlandi, þegar hlaup hófst í Mýrdalsjökli. Upphaflega var talið að lítið eldgos hefði sett hlaupið af stað, en ennþá er ekkert vitað um það með vissu. Ef þetta er gos að þá er um að ræða lítið Kötlugos, sagði Sigurlaug Hjaltadóttir, sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Gosórói mældist á mælum Veðurstofunnar. Brúin yfir Múlakvísl eyðilagðist í hlaupinu. Segja má að hún hafi rifnað af í heilu lagi. Heilmikil útihátíð fór fram á Gaddstaðaflötum. Jón Jósep Snæbjörnsson, eða Jónsi í Svörtum fötum, hneykslaði marga þegar hann ávarpaði hátíðina með orðunum „herrar mínir og hórur". „Þetta gerðist í hita leiksins á meðan gestir hátíðarinnar voru að skemmta sér hið besta," sagði Jónsi í samtali við Vísi. Árni Þór Árnason sundkappi reyndi við Ermasundið á sunnudag en varð að gefast upp. Á heimasíðu hans segir að axlarmeiðsl og miklir straumar hafi þvingað hann til að taka ákvörðun um að hætta i samráði við skipstjórann og aðstoðarmenn sína um borð. Árni var búinn að synda í nákvæmlega 9 klukkutíma og 33 mínútur og lagt að baki 36,5 kílómetra. Á mánudag sagði Fréttablaðið frá því að Vegagerðin hefði kallað hátt í tuttugu manns úr sumarfríi til að vinna að smíði nýrrar brúar yfir Múlakvísl. Engin fljótvirkari lausn er til við þessar aðstæður en að reisa nýja brú og það tekur um tvær til þrjár vikur, sagði Hreinn Haraldsson vegamálastjóri þá. Á mánudag var líka farið að ferja fólk yfir Múlakvísl en nokkur fjöldi fólks beið þann daginn eftir að komast yfir ána í rútur. Aðfararnótt þriðjudags kviknaði í á svæði Hringrásar við Sundahöfn. Heilmikill reykur gaus upp frá eldinum. Framkvæmdastjóri Hringrásar sagði að sér væri efst í huga þakklæti til slökkviliðsins, lögreglu og starfsfólks síns, þegar búið var að ráða niðurlögum eldsins að mestu. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, sinnti gæslu á leik ÍA og Leiknis í 1. deild karla í knattspyrnu á þriðjudagskvöld. „Ég er með dreng í yngri flokkunum í fótboltanum og það eru foreldrar þeirra drengja sem sjá um gæsluna á völlunum á leikjum ÍA í ár." sagði Ólafur um málið. Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, sendi á miðvikudaginn íslenskum og norskum stjórnvöldum rökstutt álit vegna trassaskapar hjá yfirvöldum ríkjanna beggja við að innleiða öryggisáætlun í vegamálum. ESA hefur hótað málsókn fyrir EFTA dómstólnum. Sævars Ciesielski lést í vikunni. Erla Bolladóttir, fyrrverandi unnusta hans og barnsmóðir, segir það vera mikla sorg að Sævar skuli vera farinn. Sævar og Erla héldu kunningsskap allt fram til hins síðasta. „Það er mikil sorg að hann skuli vera farinn og kemur miklu róti á mig sem eftirlifandi aðili að þessum málum, sem engin skil voru gerð," sagði Erla. Þar á hún við rannsóknir á andlátum Guðmundar Einarssonar og Geirfinns Einarssonar. Á fimmtudaginn gengu fulltrúar Íslands, Noregs og Japans út af fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins ásamt fulltrúum annarra ríkja sem hlynnt eru hvalveiðum. Að sögn Tómasar H. Heiðars, aðalfulltrúa Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu, var þetta gert til að koma í veg fyrir að fundurinn væri ályktunarhæfur, en þegar fulltrúarnir gengu út stóð til að greiða atkvæði um tillögu Argentínu og Brasilíu að stofnun griðasvæðis hvala í Suður-Atlantshafi. Karlmaður var stunginn lífshættulega í hálsinn svo slagæð rofnaði á veitingastað við Laugaveg um miðnætti aðfaranótt föstudagsins. Skömmu áður var tilkynnt um að óður maður gengi þar berserksgang , vopnaður hnífi, og ógnaði öllum innandyra. Sá sem varð fyrir árásinni er í lífshættu á gjörgæsludeild. Í gær sögðum við svo frá því að búið væri að hleypa umferð á nýju brúna yfir Múlakvísl. Það var gert laust eftir klukkan tólf á hádegi í gær. Brúin var vígð með þeim hætti að þeir vösku menn sem unnið hafa við brúargerðina gengu í gegnum borða en eftir það óku Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Össur Skarphéðinsson, starfandi ferðamálaráðherra, yfir brúna fyrstir manna. Smíði brúarinnar tók mun skemmri tíma en talið var að hún myndi taka. Í gær sögðum við líka frá því að Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, skorar á Ögmund Jónasson innanríkisráðherra að beita sér fyrir því að Guðmundar- og Geirfinnsmálin svokölluðu verði tekin upp að nýju.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira