Kalla starfsmenn úr sumarleyfi til vinnu 11. júlí 2011 05:00 Mest ríður á tækjavinnunni nú segir vegamálastjóri. Þegar búið er að gera plön fyrir birgðir og tæki verður líklegast unnið á sólahringsvöktum við brúargerðina. mynd/Þórir N. kjartansson
Vegagerðin hefur kallað hátt í tuttugu manns úr sumarfríi til að vinna að smíði nýrrar brúar yfir Múlakvísl. Engin fljótvirkari lausn er til við þessar aðstæður en að reisa nýja brú og það tekur um tvær til þrjár vikur, segir Hreinn Haraldsson vegamálastjóri. Baldvin Einarsson byggingaverkfræðingur tekur í sama streng og bætir við að þó víða erlendis hafi menn náð að setja niður brýr á nokkrum dögum þá sé það ekki hægt í beljandi jökulá. Hreinn segir að enn sé ekki byrjað að vinna á sólahringsvöktum. „Það er verið að safna fólki saman," segir hann. „Margir voru komnir í frí og þar af nokkrir staddir uppi á hálendi. Þeir eru á leið til byggða. Nú liggur mest á að hefja véla- og tækjavinnu, búa til plön til þess að geyma byggingarefni og einnig plön þaðan sem hægt verður að reka niður undirstöðurnar. Þegar því er lokið geri ég ráð fyrir að unnið verði á sólarhringsvöktum," segir Hreinn og ítrekar að brúargerð af þessu tagi verði ekki hrist fram úr erminni. „Þetta er brú sem þarf að taka alla þungaflutninga og standa af sér jökulvatnið jafnvel fram á næsta vor þannig að það er ekki hægt að kasta upp einhverri hrákasmíð." Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir að gerð mannvirkisins mun kosta á bilinu 400 til 500 milljónir króna. „Mér fannst mjög traustvekjandi að fylgjast með vinnubrögðum Vegagerðarinnar frá fyrstu stundu. Allur undirbúningur var fumlaus og markviss," segir hann. Ögmundur segist þó hafa fullan skilning á því að fólk sem hafi atvinnu af ferðaþjónustu hrylli við tilhugsuninni um að hringvegurinn verði lokaður í tvær til þrjár vikur. Hægt er að komast framhjá Mýrdalsjökli með því að fara Fjallabaksleið nyrðri. Hún er hins vegar ekki fær fólksbílum og fyrir betur búna bíla tekur það um þrjár og hálfa klukkustund að fara þá leið. Þjóðvegurinn rofnaði síðast árið 1996 en þá varð mikið hlaup í Skaftá. Þá tók það þrjár vikur að gera nýja brú. Þetta var um miðjan vetur svo ekki urðu ferðaþjónustuaðilar fyrir miklum skakkaföllum þá. jse@frettabladid.is
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira