Ísland, Noregur og Japan gengu út af fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins salome@365.is skrifar 14. júlí 2011 15:23 Mynd/Anton Brink
Fulltrúar Íslands, Noregs og Japans gengu út af fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í dag ásamt fulltrúum annarra ríkja sem hlynnt eru hvalveiðum. Að sögn Tómasar H. Heiðars, aðalfulltrúa Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu, var þetta gert til að koma í veg fyrir að fundurinn væri ályktunarhæfur, en þegar fulltrúarnir gengu út stóð til að greiða atkvæði um tillögu Argentínu og Brasilíu að stofnun griðasvæðis hvala í Suður-Atlantshafi. Til þess að fundurinn sé ályktunarhæfur þarf helmingur aðildarríkja ráðsins að vera viðstaddur og til þess að tillaga af þessu tagi teljist samþykkt þarf hún síðan stuðning 3/4 hluta þeirra ríkja sem taka þátt í atkvæðagreiðslunni. Tómas segist telja það nokkuð ljóst að tillagan njóti ekki stuðnings tilskilins meirihluta, en hann óttaðist það hinsvegar að atkvæðagreiðslan væri til þess fallin að auka á sundrungu milli ríkja og koma aftur á ófriði í ráðinu. "Við höfum á undanförnum misserum unnið að því ná málamiðlun milli fylgjenda og andstæðinga hvalveiða í ráðinu og andrúmsloftið innan þess hefur batnað mjög." Tómas segir stofnun umrædds griðasvæðis hafa verið hluta af drögum að pakkalausn sem lögð voru fyrir ársfund ráðsins í fyrra, en Suður-Ameríkuríkin hafi lagst þvert gegn hugmyndum um slíkar pakkalausnir og ekki verið tilbúin að sýna neinn sveigjanleika til að fallast á hvalveiðar. Tómas telur það því fráleitt að ríkin leggi nú fram einangraða tillögu um griðasvæðið og enn fráleitara að verið sé að keyra málið áfram í atkvæðagreiðslu. Hann tekur fram að Ísland og önnur hvalveiðasinnuð ríki séu í grundvallaratriðum mótfallin stofnun griðasvæða þar sem hvalveiðar séu bannaðar, nema sýnt verði fram á þörfina fyrir slík svæði með vísindalegum hætti, en að sögn Tómasar hafi engin vísindaleg gögn hafi verið lögð fram til stuðnings umræddu griðasvæði í Suður-Atlantshafi. Málið er enn til umfjöllunar á fundinum, sem lýkur í dag.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira