Innlent

Trassaskapur Íslendinga hugsanlega kærður til EFTA dómstólsins

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hvorki Íslendingar né Norðmenn hafa brugðist við tilskipun um áætlun í vegaöryggismálum. Mynd/ Stefán.
Hvorki Íslendingar né Norðmenn hafa brugðist við tilskipun um áætlun í vegaöryggismálum. Mynd/ Stefán.
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, sendi í dag íslenskum og norskum stjórnvöldum rökstutt álit vegna trassaskapar hjá yfirvöldum ríkjanna beggja við að innleiða öryggisáætlun í vegamálum.

EFTA ríkin höfðu frest til 19 desember 2010 til að innleiða þessa þessa áætlun. Ríkin voru upphaflega áminnt um skyldu sína til að bregðast við þessari nýju tilskipun þann 13. apríl 2010. Í umræddri tilskipun er kveðið á um hvernig vegakerfið á að vera skipulagt, hannað, rannsakað og metið til þess að stuðla að öryggi á vegum.

Þessi rökstudda ályktun er lokaviðvörun til Íslendinga og Norðmanna. Á vef Esa segir að ríkin tvö hafi fengið tvo mánuði til að grípa til viðeigandi ráðstafana til að bregðast við álitinu. Grípi ríkin tvö ekki til aðgerða til að bregðast við tilskipuninni muni ESA hugsanlega kæra trassaskapinn til EFTA dómstólsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×