Milljarðaviðskipti á Merseyside í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2011 06:00 Fernando Torres. Mynd/AFP
Það snerist allt í kringum Liverpool á lokadegi félagaskiptagluggans enska boltans í gær og á endanum setti félagið tvö milljarðamet. Fyrst með því að kaupa Andy Carroll frá Newcastle fyrir hæstu upphæð sem borguð hefur verið fyrir enskan leikmann og svo með því að selja Fernando Torres til Chelsea fyrir hæstu upphæð sem enskt félag hefur greitt fyrir leikmann. Liverpool gekk einnig frá kaupunum á Luis Suarez í gær og því voru heildarviðskipti félagsins 31. janúar 2011 í kringum 108 milljónir enskra punda sem teljast vera um 20 milljarðar íslenskra króna. Það lá í loftinu allan gærdaginn að Fernando Torres væri á leið til Chelsea fyrir 50 milljónir punda en Liverpool staðfesti loks söluna á leikmanninum rétt fyrir klukkan hálf átta. Torres átti þá eftir að fara í læknisskoðun og semja um sín kjör við Chelsea. Það var ekki ljóst í gær hvort Torres fengi að spila með Chelsea á móti Liverpool um næstu helgi en það yrði þá ein sögulegasta frumraun leikmanns hjá liði í ensku úrvalsdeildinni.Andy Carroll.Mynd/APÞað var meiri dramatík í kringum kaup Liverpool á Andy Carroll frá Newcastle. Newcastle hafnaði fyrstu tveimur tilboðum Liverpool en féllst loksins á það að selja leikmanninn þegar Carroll sjálfur bað um að vera seldur.Carroll kostaði Liverpool á endanum 35 milljónir punda og bætti því met Rio Ferdinand sem var áður dýrasti enski leikmaðurinn frá því að Manchester United keypti hann frá Leeds United árið 2002. Til að kóróna milljarðadaginn 31. janúar 2011 þá gekk Liverpool einnig frá kaupunum á Luis Suarez frá Ajax fyrir 22,7 milljónir punda í gær og mun Úrúgvæinn spila í treyju númer sjö hjá félaginu. Suarez skrifaði undir samning til ársins 2017. Það varð hins vegar ekkert af því að Liverpool keypti Charlie Adam frá Blackpool eða Micah Richards frá Manchester City. Liverpool bauð 10 milljónir í Adam og 20 milljónir í Richards en félög þeirra vildu ekki selja sína leikmenn.
Mest lesið Sjóhaukarnir unnu Super Bowl sannfærandi Sport „Hún hegðar sér eins og díva“ Sport Trump kallar keppanda Bandaríkjanna á Ólympíuleikunum „algjöran lúser“ Sport Lindsey Vonn fótbrotnaði við fallið Sport Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega Enski boltinn Betra ef fólk lærir að dansa en að það læri spænsku Sport Öll stúkan söng um Orra eftir markið hans Fótbolti Drama í skíðagöngu Dags: Stytti sér leið en fékk samt silfur Sport Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Enski boltinn Guðmundur Magnússon skiptir úr bláu í grænt Íslenski boltinn Fleiri fréttir Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega „Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil“ „Við urðum að vinna, annars væri titilbaráttan búin“ Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Sarr tryggði sigur gegn Mávunum Sjáðu fjórða sigur United, þrennu Palmer og tvennu Gyökeres Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Brentford upp að hlið Liverpool eftir endurkomusigur á Newcastle Mikel Arteta segir að níu stiga forysta Arsenal þýði „ekkert“ Hamrarnir sóttu sigur, Everton sneri leiknum en Villa missti niður forystu Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum United fagnaði fjórða sigrinum í röð Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Biður Liverpool að slaka á reglunum Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Risa sigur fyrir Leeds United Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Arne Slot: Jérémy Jacquet er gríðarlegt efni Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Sjá meira