Dalglish: Carroll höndlar pressuna Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. febrúar 2011 13:45 Kenny Dalglish með nýju mönnunum, þeim Suarez og Carroll. Nordic Photos / Getty Images
Kenny Dalglish, knattspyrnustjóri Liverpool, telur að Andy Carroll geti vel tekist á við þá pressu sem fylgir því að vera einn dýrasti knattspyrnumaður heims. Liverpool keypti Carroll á 35 milljónir punda á mánudaginn frá Newcastle en félagið keypti þá einnig Luis Suarez frá Ajax. Félagið seldi þá framherjann Fernando Torres til Chelsea og því þurfa þeir tveir að fylla í skarðið sem Torres skildi eftir sig. En margir draga í efa að Carroll sé svo mikils virði í dag þar sem hann er í raun nýbyrjaður að spila í ensku úrvalsdeildinni. „Ég tel að við séum spenntari yfir komu Andy en margir ykkar," sagði Dalglish við enska fréttamenn. „Allar spurningar sem við höfum fengið um hann hafa verið á neikvæðum nótum. Ég sé ekkert neikvætt við það að Andy sé orðinn leikmaður Liverpool." „Þetta voru frábær kaup hjá okkur, rétt eins og í tilfelli Luis. Þetta er frábært fyrir félagið." Carroll á við meiðsli að stríða og gat því ekki spilað með Liverpool í sigrinum á Stoke í gær. „Við hlökkum til að byrja að vinna með honum og koma honum í gott form. Ég er viss um að hann sé líka spenntur fyrir því. Hann verður bara að vera meðvitaður um að hann þarf ekki að ofreyna sig." „Við þurfum því að hugsa vel um hann og hann mun spila þegar hann verður leikfær."
Mest lesið Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Enski boltinn „Gaf frá mér hljóð sem enginn maður á mínum aldri á að gefa frá sér“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - KA 38-34| Valsmenn sópuðu KA í sumarfrí Handbolti „Trúi ekki að ég hafi beðið í 17 ár eftir grænum jakka“ Golf „Djöfull er íslenska þjóðin orðin geðveik“ Körfubolti Snorri og Arnór eftirsóttir: Áhugi erlendis frá en HSÍ enn í forgangi Handbolti Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Íslenski boltinn Besta sætið: Hættið þessu rugli og fagnið mörkunum ykkar Sport Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar Íslenski boltinn „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Isak í hópnum í París Fimm ensk lið í Meistaradeildinni á næsta ári Manchester United nýtir fríið til að fara í æfingaferð til Írlands „Finnur fyrir metnaðinum og möguleikunum“ Sleppur við bann eftir að hafa hrint dómara: „Algjör vanvirðing“ Sjá meira