Nota fimm eða fleiri lyf að staðaldri - sláandi niðurstöður Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 4. desember 2011 12:03
Ríflega fjörutíu prósent aldraðra nota fimm eða fleiri lyf að staðaldri samkvæmt nýrri rannsókn sem gerð var á Norðurlandi. Hjúkrunarfræðingur sem vann rannsóknina segir þetta sláandi niðurstöður. Erlendar rannsóknir sýna að lyfjanotkun eldra fólks hefur aukist á síðustu áratugum. Í nýjasta hefti Læknablaðsins eru birtar niðurstöður úr nýrri rannsókn á lyfjanotkun eldri Íslendinga sem enn búa heima. Skoðuð var lyfjanotkun fólks 65 ára og eldri og athugað hvort það væri munur á notkuninni meðal þeirra sem búa í þéttbýli og þeirra sem búa í dreifbýli. Notast var við úrtak sem tekið var meðal íbúa á Norðurlandi. Árún Kristín Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur er ein þeirra sem vann rannsóknina. Hún segir niðurstöðurnar sýna að íbúarnir hafi notað um fjögur lyf að meðaltali. Ekki var marktækur munur á lyfjanotkun hjá þeim sem búa í þéttbýli og þeim sem búa í dreifbýli. ,, Hins vegar sýndi það sig að dreifbýlisbúarnir í þessari rannsókn höfðu meiri verki, höfðu meiri þunglyndiseinkenni og höfðu lakari líkamlega færni, mælt með þessum mælitækjum sem við notuðum, en notuðu samt færri lyf", segir Árún. Þá sýndi rannsóknin að 11% notuðu engin lyf og 48% tóku eitt til fjögur lyf að staðaldri. Þá tóku 41% fimm eða fleiri lyf sem telst vera fjöllyfjanotkun. Af þessum 41% notuðu 4% tíu eða fleiri lyf. ,, Það er kannski sláandi hversu margir nota fimm lyf eða fleiri. Ég held að það þurfi að huga vel að þeim sem eru að taka mörg lyf því að þá er komin milliverkun á milli lyfja og lyf geta farið að hafa óæskileg áhrif", segir Árún Kristín Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent Fleiri fréttir „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Sjá meira