Chelsea og Arsenal komu bæði til baka og unnu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2011 21:42 Laurent Koscielny fagnar sigurmarki sínu. Mynd/AP
Miðverðirnir John Terry hjá Chelsea og Laurent Koscielny hjá Arsenal skoruðu báðir mikilvæg mörk í sigrum sinna liða í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Bæði lið voru að vinna sinn þriðja leik í röð í deildinni og eru áfram fimm stigum (Arsenal) og tíu stigum (Chelsea) á eftir toppliði Manchester United. Chelsea hefndi fyrir 3-0 skell á heimavelli á móti Sunderland fyrr á leiktíðinni með því að vinna 4-2 sigur á lærisveinum Steve Bruce á Stadium of Light. Arsenal vann á sama tíma 2-1 sigur á Everton á heimavelli eftir að Everton hafði komist yfir á kolólöglegu marki. Arsenal skoraði tvö mörk með sex mínútna millibili og tryggði sér mikilvægan sigur. John Terry fagnar sínu marki.Mynd/AP Chelsea var í stórsókn nánast allan leikinn í 4-2 útisigri á Sunderland í kvöld en heimamenn gátu þakkað markverði sínu Craig Gordon og klaufaskap Chelsea-manna að mörkin urðu ekki mikið fleiri. Leikurinn var frábær skemmtun og þá sérstaklega fyrri hálfleikurinn sem bauð upp á fjögur mörk á fyrstu 26 mínútunum. Phillip Bardsley kom Sunderland í 1-0 eftir aðeins fjórar mínútur með laglegu skoti fyrir utan teig en við tók stanslaus stórsókn hjá Chelsea. Frank Lampard jafnaði loks metin úr vítaspyrnu á 15. mínútu eftir klaufalegt brot Ahmed El Mohamady á Ashley Cole og Salomon Kalou kom Chelsea síðan í 2-1 á 23. mínútu eftir stungusendingu frá Nicolas Anelka. Sunderland svaraði strax því Kieran Richardson jafnaði metin í 2-2 á 26. mínútu með skoti beint úr aukaspyrnu en hann setti boltann undir varnarvegginn sem hoppaði allur upp. Chelsea hóf aðra stórsókn í seinni hálfleik sem endaði með því að John Terry skoraði með flottu skoti utan úr teig eftir að Craig Gordon, markvörður Sunderland, hafði varið til hans þrumuskot Lampard. Terry hafði fengið dauðafæri skömmu áður en nú hitti hann boltann fullkomlega. Nicolas Anelka átti frábæran leik í kvöld og það var ekki að sjá annað en að hann hafi verið að spila fyrir sæti sínu í liðinu eftir að Chelsea keypti Fernando Torres frá Liverpool í gær. Anelka átti skilið að skora og markið kom loks í uppbótartíma eftir sendingu frá Florent Malouda.Mynd/APArsenal vann sinn þriðja deildarleik í röð þegar liðið vann 2-1 sigur á Everton. Bæði mörkin komu á sex mínútna kafla um miðjan seinni hálfleik en fram að því leit út fyrir að þetta yrði ekki kvöld þeirra Arsenal-manna. Louis Saha var kolrangstæður þegar hann kom Everton í 1-0 á 24. mínútu. Saha fékk þá sendingu frá Seamus Coleman og var örugglega meter inn fyrir vörn Arsenal þegar sendingin kom. Það truflaði örugglega línuvörðinn að varnarmaður Arsenal komst í boltann en tókst ekki að stöðva sendinguna. Andrei Arshavin kom inn á sem varamaður á 62. mínútu og var búinn að jafna leikinn eftir átta mínútur. Arshavin fékk þá sendingu frá Cesc Fabregas inn fyrir vörnina og skoraði laglega. Laurent Koscielny kom Arsenal yfir á 75. mínútu með skalla úr markteignum eftir frábæra hornspyrnu frá Robin van Persie. Arsenal hafði fengið hornið eftir hafði varið naumlega glæsilega aukaspyrnu Van Persie. Úrslit og markaskorarar í ensku úrvalsdeildinni í kvöld: Mynd/APArsenal-Everton 2-1 0-1 Louis Saha (24.), 1-1 Andrei Arshavin (70.), 2-1 Laurent Koscielny (75.)Sunderland-Chelsea 2-4 1-0 Phillip Bardsley (4.), 1-1 Frank Lampard (15.), 1-2 Salomon Kalou (23.), 2-2 Kieran Richardson (26.), 2-3 John Terry (60.), 2-4 Nicolas Anelka (90.+3)
Mest lesið Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Handbolti Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira