Eiður: Á ekki von á að Ísland verði heimsmeistari fljótlega Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. febrúar 2011 11:45 Eiður Smári Guðjohnsen. Nordic Photos / Getty Images
Eiður Smári Guðjohnsen verður líklega í byrjunarliði Fulham sem mætir hans gamla félagi, Bolton í ensku bikarkeppninni á morgun. Eiður Smári er nú í láni hjá Fulham frá Stoke City en þar fékk hann lítið sem ekkert að spila í haust. Eiður kom við sögu í rúmar tíu mínútur er Fulham gerði markalaust jafntefli við Chelsea í upphafi vikunnar og stóð sig vel. Hann segist vera ánægður hjá Fulham og þá sérstaklega æfingar Mark Hughes knattspyrnustjóra. Hughes átti glæsilegan feril sem leikmaður og lék til að mynda með Manchester United, Chelsea og Barcelona - en Eiður lék einnig með tveimur síðastnefndu félögunum. „Ég er viss um að það er ýmislegt sem knattspyrnustjórarnir taka með sér frá leikmannaferlinum þegar þeir gerast þjálfarar. Æfingarnar hjá Fulham endurspegla það,“ sagði Eiður Smári í samtali við enska fjölmiðla. „Æfingarnar eru svipaðar eins og hjá Barcelona en hjá Fulham spilum við góðan fótbolta. Við gefum boltann mikið og reynum að nýta styrkleika okkar, sem er að halda boltanum við jörðina.“ „Ég hef notið tímans hér til hins ítrasta. Hraðinn hefur verið góður og ég er mjög ánægður með aðstöðuna.“ „Enska bikarkeppnin er eini titillinn sem ég hef ekki unnið - fyrir utan heimsmeistaratitilinn en ég á ekki von á því að Ísland verði heimsmeistari á næstu árum.“ „Ég spilaði í úrslitaleiknum árið 2002 með Chelsea en þá töpuðum við fyrir Arsenal.“ „Ég man hvað vikan fyrir leik var spennandi. Þetta er sú bikarkeppni í heiminum sem nýtur mestrar sérstöðu vegna langrar sögu hennar.“
Enski boltinn Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Stjarnan játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið Fótbolti Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Lækkaði launin til að upplifa drauminn Enski boltinn „Það er hrikalegt að sjá þetta“ Íslenski boltinn Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn