Neftóbakið hækkar um þrjátíu prósent 15. desember 2011 15:00
Samþykkt var á Alþingi í dag að hækka tóbaksgjald á neftóbak um 75 prósent. Hækkunin gerir það að verkum að útsöluverð neftóbaks mun hækka um 30 prósent. Álfheiður Ingadóttir þingmaður VG og fyrrverandi heilbrigðisráðherra sagði við atkvæðagreiðsluna að hækkunin væri skref í rétta átt. Hún benti á að neftóbakssala hefði þrefaldast frá aldamótum. „Aukningin er ekki hjá körlum gömlum til sveita eða hér hjá körlum á Alþingi Íslendinga, heldur hjá ungum drengjum sem taka neftóbakið í vörina," sagði Álfheiður og vísaði í rannsóknir. Hún sagði einnig þekkt að verðhækkanir á tóbaki hafi mest áhrif hjá ungu fólki og því væri hún samþykk tillögunni. Siv Friðleifsdóttir, Framsóknarflokki, sem einnig er fyrrverandi heilbrigðisráðherra, samþykkti einnig hækkunina og sagði að neftóbak væri raunar bannað víðast hvar í heiminum. Helst vildi hún banna neftóbak alfarið á Íslandi. Því miður hafi neyslan stóraukist á Íslandi og að ungir drengir væru að setja neftóbakið á vitlausan stað, það er að segja í vörina. Hún fullyrti einnig að þessi notkun auki líkur á krabbameini og því hefði hún viljað banna neftóbak alfarið.
Mest lesið Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Erlent Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Erlent Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Erlent „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Innlent Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Erlent Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann Innlent Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Innlent Fleiri fréttir „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Pólitískur refur og samningamaður mætast „Maður skilur ekki alveg hvernig á þessu stendur“ Spá því að vextir muni ekki lækka frekar á árinu Kynferðisbrot gegn barni til rannsóknar, leiðtogafundur og eldislax Netlaust í Ráðhúsinu vegna öryggisráðstafana Bíða þess enn að ráðherra svari neyðarkalli um mönnun Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Stefán Kristjánsson er látinn Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Spá eldingum á Vesturlandi Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann „Hamfarir og ekkert annað“ 30 ára afmæli Blómstrandi daga í Hveragerði „Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Hundrað eldislaxar í Haukadalsá, ásakanir um samráð og blómlegt í Hveragerði Saka Storytel um að forgangsraða eigin efni á kostnað annarra Ekki tilkynnt um stórt gat á sjókví í nokkurn tíma þrátt fyrir eftirlit Taldi hundrað eldislaxa í neðri hluta Haukadalsár Tónlistarmaður taldi handtökuna ólögmæta en fór tómhentur heim Krefjast þess að ráðherra dragi ummæli sín til baka Samkeppniseftirlitið rannsakar Storytel Fá tímabundna undanþágu frá viðskiptaþvingunum Í samtali við norsku kafarana hvort þeir komi aftur Segir tugi þúsunda sendingarkostnað vera dulinn landsbyggðarskatt Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Eldislaxar í Haukadalsá, Gnoðarvogur og samgöngur á Vesturlandi Sjá meira
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði