Innlent

Skipverjar reyndu að smygla brennivíni og tóbaki til landsins

varningurinn sem lagt var hald á.
varningurinn sem lagt var hald á. Mynd / Tollur.is
Tollgæslan fann talsvert magn af smyglvarningi í flutningaskipi við komu þess til landsins í síðustu viku.

Alls tóku níu tollverðir þátt í aðgerðinni og haldlögðu þeir smyglvarninginn; um 30 karton af vindlingum, 30 líta af sterku víni, tæplega 10 lítra af bjór og 3 lítra af léttvíni. Níu skipverjar hafa viðurkennt að eiga varninginn og telst málið upplýst.

Tollgæslan gerir árlega upptækt mikið magn af ólöglega innfluttum varningi sem reynt er að smygla til landsins. Mörg þessara mála upplýsast eingöngu vegna aðstoðar almennings.

Þetta kom fram á heimasíðu Tollgæslunnar, sem finna má með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×