Óhugnanlegt níð gegn níu börnum 30. apríl 2011 05:00 Danska lögreglan fékk fyrstu tilkynninguna um fjölskylduna árið 2006. Fréttablaðið/hari
Réttarhöld yfir dönskum hjónum sem misþyrmdu og vanræktu níu börn sín standa nú yfir. Hjónin bjuggu síðast með börn sín í niðurníddu húsi í bænum Brønderslev á Norður-Jótlandi. Þau eru sökuð um að hafa misþyrmt börnum sínum kynferðislega, þá helst elstu dótturinni sem er 21 árs gömul, og látið börnin búa við algjörlega óviðunandi aðstæður. Elsta dóttirin tilkynnti málið til yfirvalda á síðasta ári. Hjónin neita bæði sök. Málið er talið hið alvarlegasta sinnar tegundar sem upp hefur komið í Danmörku, en mikið hefur verið fjallað um réttarhöldin í dönskum fjölmiðlum. Börnin níu höfðu verið látin ganga um berfætt og þeim misþyrmt gróflega með bareflum. Lögreglumenn sem komu á vettvang hafa lýst þeim hræðilegu aðstæðum sem börnin voru látin búa við og sögðu að heimilið hefði angað af saur og hlandi. Hvergi hefði verið pláss fyrir börnin til að leika sér og eldhúsið hefði verið uppfullt af rusli og óhreinindum. Heimilishundur hefði gert þarfir sínar innandyra og hvergi hefði verið að sjá fóður eða vatn handa honum. Fimm dauðir hestar fundust við húsið og höfðu hræin verið étin af rottum og músum. Tveir hestar til viðbótar fundust á lífi, en voru afar hætt komnir sökum vannæringar og vanrækslu. Lögreglan fékk fyrstu tilkynningarnar um fjölskylduna árið 2006. Hjónin höfðu þá flust á milli bæjarfélaga til að forðast inngrip frá yfirvöldum. Þau voru þó ekki handtekin fyrr en á síðasta ári. Búist er við því að aðalmeðferð gegn hjónunum standi fram í næstu viku.- sv
Mest lesið Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Innlent Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Erlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Erlent Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Innlent Greinir á við kjósendur sína Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Innlent Fleiri fréttir Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Sjá meira