Funda með stóriðju vegna kolefnisgjalds 24. nóvember 2011 09:00 Forsvarsmenn Íslenska kísilfélagsins hafa verið harðrorðir vegna kolefnisgjalds á rafskaut. Hann drepi niður eðlilegar forsendur fyrir kísilvinnslu á Íslandi.
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Stjórnvöld munu hitta fulltrúa stóriðjunnar vegna fyrirhugaðs kolefnisskatts sem styr hefur staðið um. Fjármálaráðherra segir fyrirtæki ekki verða tvísköttuð. Ekki komi til gjaldsins fyrr en 2013 vegna fyrri loforða gagnvart stóriðju. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra vísar því á bug að stjórnvöld séu að svíkja samninga gagnvart stóriðjunni með fyrirhuguðu kolefnisgjaldi á rafskaut. Fyrsti áfangi skattheimtunnar komi ekki til framkvæmda fyrr en árið 2013, einmitt vegna samninga við stóriðjuna, en þeir renni sitt skeið á enda 2012. Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, sakaði stjórnvöld um samningsrof í Fréttablaðinu í gær. Stóriðjan hefði fallist á að greiða fyrirfram tekjuskatta á árunum 2010 til 2012 gegn því að ekki yrði lagt á kolefnisgjald á rafskaut. Þá þýði gjaldið tvöfalda skattheimtu þar sem fyrirtækin þurfi einnig að kaupa hluta af losunarheimildum sínum. Steingrímur segir þetta af og frá. Horft hafi verið til samninganna við tímasetningu gildistöku skattsins. Þá hafi aldrei staðið til að tvískatta fyrirtæki. „Í umsögn um þetta ákvæði í greinargerð er tekið fram að framhaldið verði skoðað í ljósi þess hvernig fer með losunarheimildir og greiðslur fyrir þær. Það hefur aldrei staðið til að tvískatta og að fyrirtækin greiði fullt kolefnisgjald og kaupi losunarheimildir til viðbótar. Það er beinlínis sagt að þetta verður endurskoðað.“ Steingrímur segir kolefnisgjöld vera umhverfisskatta og eiga að virka hvetjandi fyrir iðnaðinn til að þróa sínar tæknilausnir og draga úr losun. Vissulega sé líka horft til þess að þau afli tekna, ekki veiti af. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins munu fara af stað viðræður á milli stjórnvalda og fulltrúa stóriðjunnar um hvernig hægt sé að koma í veg fyrir að samkeppnisstaða Íslands skaðist við kolefnisgjöldin. Fyrsti fundur verður á mánudag. Steingrímur segir að ekki sé ætlunin að gjöldin verði meira íþyngjandi hér en búast megi við að þau verði í öðrum löndum. Verkefnið sé að útfæra í einstaka tilvikum samhengið á milli kolefnisgjaldanna og þess sem fyrirtækin greiða fyrir losunarheimildir. kolbeinn@frettabladid.isdsf
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Fleiri fréttir Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Sjá meira