Bókaskattur þvingar SI í mál gegn ríkinu 5. desember 2011 05:00 Hlutfall prentaðra bóka á Íslandi er um 70 prósent og hefur aldrei verið hærra. fréttablaðið/gva
Bækur og tímarit prentuð á Íslandi bera mun hærri virðisaukaskatt en erlent prentverk. Samtök iðnaðarins (SI) hlutast til um að reka prófmál gegn ríkinu fyrir héraðsdómi þar sem þess verður krafist að innlendir framleiðendur sitji við sama borð og þeir sem flytja inn bækur og tímarit prentuð erlendis. Bókaútgefendur, ólíkt prenturum, virðast hins vegar ekki hafa þekkt til þessa mikla munar á skattinum og hann skýrir ekki hvar þeir láta prenta bækur sínar. Bækur og tímarit sem prentuð eru erlendis bera sjö prósent virðisaukaskatt í tolli en íslenskum prentsmiðjum er gert að leggja á 25,5 prósent vask á sitt prentverk. Samtök iðnaðarins telja að um óréttmæta mismunun sé að ræða. Sigurður B. Halldórsson, lögfræðingur hjá SI, útskýrir að prófmálið sé örþrifaráð, þar sem skattayfirvöld neiti að viðurkenna kjarna málsins. „Hann er að íslenskar prentsmiðjur, eins og þær erlendu, skila bók tilbúinni til neytenda. Í virðisaukalögum stendur skýrt að bók skuli bera sjö prósenta skatt. Þetta misræmi gengur ekki upp þegar lögin eru skoðuð. Yfirvöld þverskallast við og fullyrða að þetta sé prentsmiðjuþjónusta sem á að bera hærri skatt.“ Sigurður segir að þessi mikli skattamunur hamli samkeppni, og því afar mikilvægt að fá úr þessum ágreiningi skorið. Fyrirspurnir meðal íslenskra bókaútgefenda vegna fréttarinnar sýna að þeim var mörgum ekki kunnugt um þennan mikla mun á skattinum og því er hann ekki áhrifavaldur í vali á prentlandi bóka eða tímarita. Útgefendur, sem flestir láta prenta hérlendis, horfa mikið til styttri afgreiðslutíma, möguleika á endurprentun og hagstæðari greiðsluskilmála, svo fátt eitt sé nefnt. Hins vegar kom fram hjá einum viðmælenda Fréttablaðsins að athygli bókaútgefenda hafi verið vakin á þessum mun sem geti haft áhrif á hvar bækur verða prentaðar í framtíðinni. Könnun á prentstað íslenskra bóka, sem getið er í Bókatíðindum FÍB, árið 2011 sýnir að fjöldi titla sem prentaðir eru innanlands dregst saman um rúmlega þrjú prósentustig milli ára en árið 2010 var 71,4 prósent hlutfall á prentun bókatitla innanlands. Mikill munur á virðisaukaskatti skýrir því ekki þennan samdrátt. Það er aukin útgáfa barnabóka, en samprent, og þá erlendis, er algengt í útgáfu barnabóka þar sem prentað er sameiginlega fyrir mörg lönd. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Erlent Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Erlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Innlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Fleiri fréttir Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Sjá meira