Aðferð Norðmanna yki fé um milljarða 5. desember 2011 03:15 Meðal þess sem hefur notið styrkja úr AVS-sjóðnum er fiskeldi. Fréttablaðið/vilhelm
Íslendingar standa Norðmönnum langt að baki þegar kemur að fjármögnun rannsókna- og þróunarverkefna í sjávarútvegi. Væri aðferðafræði Norðmanna fylgt væri fé til rannsókna og þróunar um tveimur milljörðum krónum meira á ári. Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís, varpaði fram þeirri spurningu á aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva nýlega hvort líta bæri til Norðmanna varðandi rannsóknir og þróun, og hvort efla mætti íslenskan sjávarútveg með því að taka upp aðferðafræði þeirra við fjármögnun. Sveinn segir að virðiskeðja sjávarútvegs, útvegur og vinnsla, standi undir sjóðum til sjávarútvegstengdra rannsókna og þróunar í Noregi, auk almennra rannsóknasjóða. Þannig leggja Norðmenn gjöld á útflutningsverðmæti sjávarafurða sem nemur 1,05 prósentum af heildinni og skilar 11,4 milljörðum íslenskra króna. Sambærileg gjaldtaka á Íslandi myndi skila 2,3 milljörðum, en útflutningsverðmæti sjávarafurða hér á landi var 220 milljarðar árið 2010. Sveinn segir það ekki óeðlilegt í sínum huga, í ljósi mikilvægis sjávarútvegs á Íslandi, að greinin hefði sem öflugust tæki til þróunar. „Ísland stendur höllum fæti í samanburði við Norðmenn hvað þetta varðar, og reyndar á þetta við um fleiri lönd. Samanburðurinn er hins vegar mjög raunhæfur við Norðmenn, þar sem við erum utan við ESB og sjávarútvegur skiptir miklu máli í báðum löndum." Árið 2010 hafði AVS, rannsóknasjóður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, úr 306 milljónum að moða, en sjóðurinn er fjármagnaður á fjárlögum hvers árs. Sveinn segir ofmælt að segja að útgerðin fjármagni sjóðina í Noregi en almannafé sé nýtt hér. Útgerð og vinnsla greiði sitt til samfélagsins sem nýtist í gegnum sjóðina. Sjóði Norðmanna, FHF-sjóðnum, er stjórnað af mönnum sem sjávarútvegur og fiskeldi skipa til verksins, enda stofnaður að frumkvæði greinarinnar. Ráðherra skipar stjórn AVS og ber faglega ábyrgð hérlendis. Norðmenn reka Útflutningsráð fyrir sjávarafurðir (Eksportudvalget), sem hefur starfsemi í tólf löndum. Hlutverkið er að greina stöðu norskra afurða á mörkuðum, safna upplýsingum um tækifæri og efla kynningu. „Við höfum í raun ekkert sambærilegt. Eftir að sölusamtökin breyttu um hlutverk er enginn íslenskur aðili sambærilegur. Margir sterkir aðilar eru að markaðssetja fisk og sjávarafurðir en það er minni heildarsýn yfir markaðsmál greinarinnar hérlendis en í Noregi," segir Sveinn. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira